Hafnarborg tekur nú þátt í Safnanótt eins og önnur söfn á höfuðborgarsvæðinu. Það verður mikið um að vera bæði leiðsagnir, tónlistaratriði, heimsókn í geymslurnar og styttuganga um miðbæ Hafnarfjarðar. Allir viðburðirnir eru ókeypis.
Dagskrá:
Opin listsmiðja fyrir alla fjölskylduna allt kvöldið– Á sýningunni Endalokin skipar módelið stóran sess. Á safnanótt verður komið upp aðstöðu í Hafnarborg þar sem gestir á öllum aldri geta spáð í módelteikningu - teiknað, skoðað og skapað.
Kl. 19:30 Styttuganga um miðbæinn – Gengið verður um miðbæ Hafnarfjarðar og útilistaverkin á svæðinu skoðuð með leiðsögn. Safnast saman við Bókasafn Hafnarfjarðar, Standgötu
Kl. 20:30 Ljósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir segir frá innsetningu sinni í Sverrissal.
Kl. 21:00 – 22:00 Á bak við tjöldin. Gestir fá tækifæri til að skyggnast á bakvið tjöldin í Hafnarborg og skoða geymslur safnsins í fylgd starfsmanna. Hver heimsókn er stutt og er tekið á móti gestum í litlum hópum, hámark 10 gestir.
Kl. 21:30 Endalokin - Hvað segir módelið. Páll Haukur Brynjólfsson sem sat fyrir hjá Ragnari Kjartanssyni í Feneyjum segir frá sýningunni og upplifuninni af því að vera hluti af listaverki í sex mánuði.
Kl. 24:00 Lokað
Munið veitingasöluna í Manni lifandi í Hafnarborg – safnanætur tilboð!
Öll söfnin í Hafnarfirði taka þátt í Safnanótt Bókasafn Hafnarfjarðar Byggðasafn Hafnarfjarðar og Kvikmyndasafn Íslands
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |