mynd tengd atburði: Fyrirlestur með Guðlaugi Valgarðssyni
08. apríl - 08. apríl 2010  kl. 20

Fyrirlestur með Guðlaugi Valgarðssyni

Listamaðurinn og hönnuðurinn Guðlaugur Valgarðsson ætlar að fjalla um verk sitt
Joy(n) á sýningunni Í barnastærðum sem nú stendur yfir.Verkið sem um ræðir er bæði rennibraut, hús(gagn) og vegasalt. Hér er sýndur hluti af þeirri rannsóknarvinnu sem á sér stað þegar unnið er að nýjum hugmyndum. Guðlaugur er menntaður frá LHÍ þar sem hann stundaði nám við skúlptúrdeild skólans og lauk námi þaðan 2001, auk þess sem hann var skiptinemi við Kungliga Konsthögskolan í Stokkhólmi. Hann hefur síðan  einkum starfað við myndlistarkennslu auk þess að sinna myndlistinni  en  stundar nú Mastersnám í Húsgagna-og innanhúshönnun við Konstfack listaháskólann í Stokkhólmi og er Joy(n) hluti af lokaverkefni hans frá þeim skóla.  Ókeypis aðgangur.

Um verkið segir Guðlaugur eitthvað á þá leið að:

Joy(n) er hugsað sem sería af einingum sem börn geta raðað saman á ýmsa vegu og notað þannig jöfnum höndum sem "hefðbundin" húsgögn og leiktæki. Kveikjan að verkinu er einkum sprottin af þeirri þörf barna að klifra, hreyfa sig og endurskapa í sífellu umhverfi sitt í leik. Heiti verksins er  orðaleikur myndaður af orðunum Joy = (leik)gleði og Join = að tengja saman.


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is