Friederike von Rauch segir frá verkum sínum og ferli sem ljósmyndara. Hún segir frá nálgun sinni við staði og þeirri tækni sem hún notar við ljósmyndavinnu sína. Ljósmyndir hennar lýsa eyðilegum stöðum útfrá óvenjulegum sjónarhornum. Með sérstakri næmni nær hún að vekja þá til lífs og kalla fram einkenni þeirra með einfaldri ljósmyndunartækni þar sem hún notast aðeins við náttúrulega lýsingu hvers staðar.