04. júní - 04. júní 2011 kl. 14
Bjartir Dagar - Ratleikur
Ratleikur um höggmyndagarðinn á Víðistaðatúni þar sem tvinnast saman skemmtileg fræðsla og útivist fyrir alla fjölskylduna. Mörg forvitnileg listaverk eru á túninu og verða þátttakendur margs vísari um ævintýraleg verk eins og himnastólinn eftir Sverri Ólafsson sem ber yfirskriftina Hundrað ára einsemd og síma frönsku listakonunnar Soniu Renard – Slæmt samband og svona mætti lengi telja. Lagt upp frá skátaheimilinu Hjallabraut.