Fimmtudaginn 3. júní kl. 12 heldur bandaríski fræðimaðurinn og sýningarstjórinn Elizabeth Schlatter hádegisfyrirlestur um sýningarstjórn í fyrirlestrarsal Þjóminjasafns. Hún fjallar um víkkað svið sýningarstjórnar (curatorial activity), óljósan skilning á hlutverki sýningarstjórans og fagmennsku sem birtist í sjálfhverfri fræðilegri skoðun, stofnana gagnrýni og nálgun háskólasamfélagsins.
Elizabeth Schlatter er deildar- og sýningarstjóri við söfn á vegum Richmond háskóla í Virginiu fylki í Bandaríkjunum. hún hefur unnið við virtar safnastofnanir á borð við Smithsonian, National Portrait Gallery og National Museum of American Art í Bandaríkjunum. Schlatter er höfundur fjölmargra greina í tímaritum á borð við MUSEUM, Focus og bókana Become an Art Curator (2006), og Museum Careers: A Practical Guide for Students and Novices ( 2008).
Schlatter er gestur Hafnarborgar menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar en fyrirlesturinn er skipulagður af Safnaráði í samstafi við námsbraut í safnafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn. Sjá heimasíðu Elizabeth Schlatter hér
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |