Íslenski safnadagurinn hefur verið haldin hátíðlegur síðan árið 1997 að frumkvæði Íslandsdeildar ICOM. Söfn og aðrar menningarstofnanir opnar dyr sínar og að venju er ókeypis aðgangur. Hafnarborg mun bjóða upp á leiðsögn um yfirstandandi sýningu Formlegt aðhald verks Eiríks Smith í fylgd sýningarstjórans og forstöðumanns Hafnarborgar Ólafar K. Sigurðardóttur kl. 13.