Sýning Pleaser er sýning á nýjum og nýlegum verkum eftir Hörpu Björnsdóttur í Sverrissal, en Harpa mun ræða við gesti sýningarinnar sunnudaginn 29. janúar kl. 15. Viðfangsefni hennar eru fjölbreytt og eitt af því sem hún hefur fengist við er hlutverk listamannsins og sá menningarlegi hugmynda- og táknheimur sem listamenn sækja í. Hægt er að lesa nánar um sýninguna Pleaser hér.