List og leikur - Ratleikur fyrir alla fjölskylduna

Hér er hægt að nálgast ratleikinn List og leikur en Hafnarborg stóð fyrir þeim viðburði á Björtum dögum í Hafnarfirði 28. maí til 7. júní. Ratleikurinn var gerður í kringum Höggmyndagarðinn á Víðistaðtúni í Hafnarfirði. Prentið út og byrjið.

Á Víðistaðatúni er alþjóðlegur Höggmyndagarður með skúlptúrum eftir 16 listamenn frá frá Mexikó, Sviss, Frakklandi, Finnlandi, Japan, Þýskalandi og Íslandi.  Skúlptúrarnir eru unnir á árunum frá 1991 til 1993 og flestir gerðir í Listamiðstöðinni Straumi fyrir Listahátíð í Hafnarfirði á árunum 1991 og 1993. Verkin eru mörg ævintýraleg og má þar nefna himnastól eftir Sverri Ólafsson sem ber yfirskriftina Hundrað ára einsemd, síma frönsku listakonunnar Soniu Renard – Slæmt samband og svona mætti lengi telja. Skemmtileg fræðsla og útivist fyrir alla fjölskylduna.

Æskilegt er byrja hjá skátaheimilinu við Hjallabraut og auðvelt að leggja bílnum þar og muna að klæða sig eftir veðri.


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is