|
Heimsókn í Hafnarborg
Hafnarborg leggur áherslu á safnfræðslu í starfsemi sinni og býðu upp á ókeypis safnfræðslu fyrir skólahópa alla virka daga kl. 8 - 15. Athugið að panta þarf með góðum fyrirvara.
Heimsóknin tekur um það bil 40 - 60 mín og hægt er að panta á skrifstofutíma í síma 585 5790 eða senda á netfangið hafnarborg@hafnarfjordur.is.
Upplýsingar um sýningar eru sendar skólunum vor og haust, en einnig er hægt að nálgast upplýsingar um sýningar á vefnum. Safnfræðslan er skipulögð með það í huga að auka skilning og kunnáttu á list og söfnum.
Markmiðið með henni er að auðga og styðja kennslu í skólum auk þess að ná til fjölbreytts hóps af fólki, óháð aldri, félagslegum bakgrunni og getu einstaklinga, skapa vettvang fyrir umræðu og þróa gagnrýninn skilning hjá nemendum á listum almennt svo þau geti tjáð sig og túlkað.
Einnig er hægt er að panta leiðsögn fyrir hina ýmsu hópa s.s. félagasamtök, vinnustaðahópa eða vinahópa og er heimsóknin sniðin að óskum hvers hóps eins og hægt er.
Hægt er að fá allar nánari upplýsingar hjá á fræðslufulltrúum Hafnarborgar alla virka daga á milli klukkan 8:30 og 16 í síma 585 5790 eða senda fyrirspurn á netfangið: hafnarborg@hafnarfjordur.is
Sjá myndir af safnfræðslu um yfirstandandi sýningu hér |