mynd tengd atburði: Undanfari - Sigurður Guðjónsson
16. febrúar - 10. apríl 2012  

Undanfari - Sigurður Guðjónsson

Sigurður Guðjónsson vinnur myndbandsverk þar sem mynd, hljóð og rými eru órofa heild. Hann sækir hugmyndir í sitt nánasta umhverfi, oft yfirgefna og myrka staði sem verða að umgjörð hreyfingar og hljóðs sem lúta eigin lögmálum og skapa sterkt andrúmsloft. Heimur verkanna er fjarlægur og dregur áhorfandann að kjarna verksins í gegnum nánast líkamlega upplifun af samspili myndar og hljóðs við umhverfið. Titill verksins á þessari sýningu er Undanfari (2012). Það er myndbandsinnsetning þar sem greina má stemningu sem er nokkuð frábrugðin stemningu fyrri verka Sigurðar og áferð verksins, litur og umhverfi bera með sér ákveðna fortíðarhyggju. 


Undanfari sýnir nakinn karlmann í tómu herbergi þar sem sjá má út á gang með nokkrum hurðum. Umhverfið gefur til kynna klassíska húsagerð Mið-Evrópu enda er verkið tekið upp í Vínarborg þar sem Sigurður hefur bæði stundað nám og starfað að myndlist. Í borginni mætist rík tónlistar- og myndlistarhefð og hefur hún haft mikil áhrif á listsköpun Sigurðar sem sjálfur á sér bakgrunn í tónlist.


Í verkinu, Undanfara,  hafa taktfastar hreyfingar mannsins og þungi líkamans áhrif á umhverfið, skuggi fellur á vegginn og brak í gólffjölum ómar um rýmið. Maðurinn hlustar á eigin þunga í gegnum tengslin við gólfið um leið og hann virðist glíma við eigin skugga og berjast við að hafa áhrif á umhverfið með hljóðinu. Nekt líkamans og stellingar minna á klassísk anatómísk viðfangsefni myndlistar en taktur hreyfinganna tengja verkið við einhverskonar mannlegan frumkraft. Yfir myndflötinn liggja stálvírar eða strengir sem undirstrika samhljóm hljóðs og myndar í klassísku umhverfi verksins. Skuggaform færist hægt eftir stálstrengjunum og myndar sefandi hljóð í takt við hrynjandann í hreyfingum mannsins og andstöðu við það hljóð sem hann skapar í rýminu með líkama sínum. Í verkinu ríkir undarleg stemning þar sem líkamleg nálægð, tómleiki umhverfisins og hljóð mynda tilfinningalegan þunga og drifkraft verksins. Undanfari leiðir áhorfandann inn í hljóð- og myndheim þar sem endurtekning og hrynjandi skapa andrúmsloft sem bæði vísar til menningarlegs bakgrunns og sálræns ástands.


Sigurður Guðjónsson (f. 1975) er einkum þekktur fyrir myndbandsverk sem mynda heildstæðan hljóð- og myndheim. Einstaklega vönduð útfærsla og persónulegur myndheimur hafa skipað honum á meðal fremstu vídeólistamanna Íslands. Verk hans hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum hér á landi meðal annars Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur. Hann hefur jafnframt sýnt verk sín á einkasýningum erlendis og átt verk á samsýningum víða um heim, oft í félagsskap leiðandi samtímalistamanna. Sigurður lauk BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og stundaði framhaldsnám við Listaakademíuna í Vín 2003 – 2004.

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is