mynd tengd atburði: Tveir Módernistar - Sigurjón Ólafsson og Þorvaldur Skúlason
04. október - 09. nóvember 2008  

Tveir Módernistar - Sigurjón Ólafsson og Þorvaldur Skúlason

Sigurjón Ólafsson(1908-1982) fæddist á Eyrarbakka árið1908.  Fyrstu tilsögn í myndlist hlaut hann hjá Ásgrími Jónssyni listmálara og síðar Einari Jónssyni myndhöggvara.  Samhliða listanáminu lauk Sigurjón sveinsprófi í húsamálun frá Iðnskólanum í Reykjavík vorið 1927 og ári síðar sigldi hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann hóf nám í Konunglegu Akademíunni hjá professor Utzon-Frank.  Námið sóttist honum vel og haustið 1930 hlaut hann gullverðlaun Akademíunnar fyrir styttu af Verkamanni sem nú er í eigu listasafns Íslands.  Sigurjón dvaldist í Róm við nám 1931-32 og náði lokaprófi í Akademíunni 1935 og var talinn mjög efnilegur.  Verk hans frá námsdvölinni vekja enn mikinn áhuga og fyrir protrettið Móðir mín (1938) hlaut hann Eckersberg verðlaunin.  Afsteypa af því verki er til í ríkislistasöfnunum í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Listasafni Íslands.  Að loknu stríði flutti Sigurjón heim og var meðal brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi.  Auk hinna hefðbundnu verka vann hann alltaf frjáls verk þar sem hugmyndaflug og tilraunir með efni og form fengu að ráða.  Sigurjón vann með fjölbreyttan efnvið s.s. leir, gifs, tré, málma, stein og steinsteypu.  Síðustu ár ævinnar notaði listamaðurinn oft tré eða rekavið í verk sín.

Þorvaldur Skúlason (1906-1984) fæddist á Borðeyri við Hrútafjörð 30. apríl árið 1906. Árið 1909 fluttist Þorvaldur með foreldrum sínum til Blönduóss og ólst þar upp til 15 ára aldurs. Árið 1920 réði Þorvaldur sig sem messadreng á gamla Gullfoss sem sigldi milli Reykjavíkur, Leith og Kaupmannahafnar. Í þeim ferðum skoðaði hann listasöfn í Edinborg og Kaupmannahöfn. Þorvaldur fótbrotnaði og varð að hætta sem messadrengur og fór þá að teikna meðan hann var rúmliggjandi. Fór hann upp úr því til Reykjavíkur og fékk tilsögn í teikningu hjá Ásgrími Jónssyni en hafði áður fengi tilsögn hjá Þórarni Þorlákssyni. Haustið 1924 fluttist Þorvaldur með móður sinni og systkinum til Reykjavíkur, faðir hans hafði dáið níu árum áður. Árið 1927 sýnir Þorvaldur í fyrsta sinn opinberlega á Sjöundu almennu sýningu Listvinafélgsins í Reykjavik. Fyrsta einkasýninguna opnaði hann 16. febrúar 1928. Árið 1928 fór Þorvaldur til Noregs til náms í listaháskólanum í Osló. Vorið 1931 fluttist Þorvaldur til Parísar og var þar við nám og störf. Árið 1933 settist hann að í Kaupmannahöfn, hann ferðaðist til Frakklands og Ítalíu, var m.a. á Sikiley í nokkra mánuði. Árið eftir flutti hann til Frakklands en flúði með fjölskyldu sinni til Íslands árið 1940 vegna framsóknar þýska hersins. Eftir það bjó Þorvaldur að mestu í Reykjavík. Hann var meðal stofnenda Septemberhópsins árið 1947, tók m.a. þátt í sýningum FÍM og sýningum Septem hópsins. Árið 1972 sýndi Þorvaldur ásamt Svavari Guðnasyni á La Biennale di Venezia. Árið 1980 var Listasafn Háskóla Íslands stofnað með listaverkagjöf hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Sverris Sigurðarssonar. Megin uppistaða þeirrar listaverkagjafar voru verk eftir Þorvald eða um 117 af um 150 verkum og nefnist deild í safninu Þorvaldssafn. Þorvaldur Skúlason lést árið 1984, þá 78 ára.

Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11:00 til 17:00 og fimmtudaga er opið til kl. 21:00. Sýningin stendur til 9 nóvember.

Frítt er í hafnfirsk söfn í boði Glitnis

 


 
 
 
 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is