mynd tengd atburði: Hvar er klukkan? - Davíð Örn Halldórsson
07. nóvember - 03. janúar 2010  á neðri hæð

Hvar er klukkan? - Davíð Örn Halldórsson

Davíð Örn Halldórsson (f.1976) hefur vakið athygli fyrir málverk sem einkennast af kraftmikilli notkun lita og spennandi samruna forma og frásagnarkennds fantasíuheims. Hann hefur unnið bæði málverk og rýmisverk sem hafa sterka skýrskotun til graffítíverka en falla á einstæða hátt að myndlistarhefðinni um leið og þau vísa sterkt í götulistina. Davíð Örn notar  fundið efni; málar með skipalakki, spreyjar með úðabrúsalakki og teiknar með tússi á fundnar tréplötur, pappa eða beint á veggi, auk þess að nota litrík límbönd og efnisbúta. Á þessari sýningu verða mest ný málverk unnin á síðasta ári en einnig stórar málaðara ljósmyndir og innsetning sem brýtur upp rými  og umhverfi Hafnarborgar.


Davíð Örn Halldórsson útskrifaðist frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2002. Hann hefur haldið fjölda sýninga og á að baki stuttan en óvenju kröftugan feril. Á meðal sýninga má nefna; sýninguna Valþjófsstaðahurðin í 101 projects 2009, Absalút gamall kastale í Gallerí Ágúst í Reykjavík 2008, Quadro Pop í Safni,  Sjáðu alla grænu fokkana í Banananas Gallerí í Reykjavík og samsýningarnar; The Saga Spirit Alive í Trygve Lie Gallery í New York 2007, Hérna í Hangart-7 í Salzburg 2007, Nói át- No way out í Nýlistasafninu í Reykjavík  2007, Pakkhús Postulanna í Listasafni Reykjavíkur; Hafnarhúsi 2006, Grasrót í Nýlistasafninu í Reykjavík 2005, og í Dalsåsen í Noregi 2004, þar sem Davíð Örn dvaldi í gestavinnustofu fyrir listamenn. Hann hefur hlotið starfslaun listamanna, árið 2008 hlaut Davíð Örn hæsta styrk úr hinum virta Listasjóði Dungal og á nú verk á sýningunni Rím í Listasafni Reykjaíkur í Ásmundarsafni.

 

Opnunardagur sýningarinnar er jafnframt útgáfudagur nýrrar bókar um listamanninn sem gefin er út af bókaútgáfunni Ókeibæ. Heiti bókarinnar er Ofhlæði/Overhload og er hún bæði á íslensku og ensku. Í bókinni eru myndir af verkum og viðtal sem Markús Þór Andrésson tók við Davíð Örn auk texta eftir rithöfundinn Sjón. Ókeibæ er nýtt lítið bókaforlag sem sérhæfir sig í myndasögum, barnabókum og listaverkabókum. Myndasögum, því að það er skammarlega lítið af myndasögum gefnar út á Íslandi. Barnabókum, því starfsfólk forlagsins er afar óþroskað. Og listaverkabókum, því að list er falleg. Ókeibæ er á móti samkeppni, kreppuvæli og meðalmennsku og fagnar Hafnarborg samstafinu.

 

 

 

BLÓÐ GUÐS

(hugsað um málverk Davíðs Arnar Halldórssonar)

 

Augnablikið sem orðið kom fram á varir hans fékk Guð sjónina. Hann

sá að hann var allsstaðar. Hann sá sjálfan sig úr öllum áttum, ofan

frá og neðan frá, frá öllum hliðum, frá öllum sjónarhornum samtímis.

Og þar sem Guð þekkti ekkert upp, ekkert niður, ekkert hér og þar -

allt var upphafspunktur og niðurstaða í senn - þá var vitund hans

heil og óskipt jafnframt því að vera stödd í hverjum krók og kima

hins verðandi heims. (steinexi - örflaga.) Hann var einn og margur í

senn. Munnar hans lukust upp.

 

10-47 sekúndum eftir að ljósið tók að flóa hafði það náð augum Guðs

hvar sem hann stóð. Og svo mikill var blossinn að sjálfkrafa brá

hann hendi fyrir augu sér. (steintíglar - marbúrgarveiran -

páfagauksfjaðrir.) En andartakið er ótalmargar hendurnar fóru hjá

ótölulegum munnunnum á leið sinni að óteljandi augunum þá féll

ljósið á handarbakið og Guði til furðublandinnar gleði smó það

gegnum höndina og streymdi út um lófann: Rautt.

 

Blóðlituð birtan var þægileg auganu. Guð færði höndina aftur að

munninum og hélt henni þar. Andgufur hans blönduðust litnum og þá

tók að bera á fyrirbærum í bleikri þokunni. (taugakerfi ánamaðks -

vetrarbrautaklasinn: MS 0735.) Á heitt tjaldið varpaði ljósið myndum

af því óskiljanlega efni sem Skaparinn hafði skapað sjálfan sig af.

 

Og enn heldur Guð mikilli hönd sinni fyrir vitum sér.

 

Sjón

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is