Á sýningunni Sjórinn og sjávarplássið eru valin málverk Sveins Björnssonar (1925 – 1997) sem sýna vel hve nátengdur hann var sjónum og sjávarútvegi í listsköpun sinni. Sveinn hóf starfsævi sína sem sjómaður en hann hætti til sjós og gerði myndlist að meginviðfangsefni ævi sinnar. Elsta verkið á sýningunni vann hann veturinn 1948 – 49 af ísjökum á Halamiðum og er það jafnframt fyrsta verkið sem hann málaði innblásinn af fegurð og ógnum hafsins. Sjórinn og sjávarútvegurinn eru áberandi í verkum Sveins en myndheimur hans er áhrifamikill, fullur af vísunum í íslenska þjóðtrú og trúarlegar táknmyndir listasögunnar. Frásagnarmáti verkanna er oft draumkenndur þar sem saman fara kraftmikil notkun olíulita, fantasía og sterk tengsl við sjóinn og sjávarplássið. Á sýningunni gefst tækifæri til að sjá mörg af helstu verkum Sveins en þau eru ýmist í eigu Sveinssafns eða hafa verið fengin að láni hjá stofnunum og einkaaðilum.
Sveinn hélt á ferli sínum fjölda einkasýninga, meðal annars í Listamannaskálanum og á Kjarvalsstöðum, og átti verk á mörgum samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Sveinn var að mestu sjálfmenntaður í myndlist en hann hélt þó utan til náms við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn haustið 1956 og dvaldi þar einn vetur. Áður en hann sneri aftur til Íslands hélt hann í námsferð til Ítalíu þar sem hann fékk tækifæri til að kynnast listasögunni. Dvölin í akademíunni hafði mikil áhrif á Svein, en þar eignaðist hann félaga í listinni, því þar kynntist hann hópi listamanna sem hann sýndi reglulega með á sjöunda áratugnum.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |