mynd tengd atburði: Úrvalið - Íslenskar ljósmyndir 1866-2009
07. nóvember - 03. janúar 2010  Aðalsalur

Úrvalið - Íslenskar ljósmyndir 1866-2009

Sýning á verkum eftir þrettán íslenska ljósmyndara, níu látna og fjóra sem enn starfa. Sýningarstjórinn, Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari, valdi verk ellefu karla og tveggja kvenna sem öll gerðu ljósmyndun að ævistarfi. Ljósmyndararnir eru: Sigfús Eymundsson, Nicoline Weywadt, Magnús Ólafsson, Pétur Brynjólfsson, Sigríður Zoëga, Jón Kaldal, Ólafur Magnússon, Vigfús Sigurgeirsson, Ólafur K. Magnússon, Guðmundur Ingólfsson, Sigurgeir Sigurjónsson, Ragnar Axelsson og Páll Stefánsson.


Sigfús Eymundsson (1837–1911) kom heim til Íslands árið 1866 eftir að hafa lokið ljósmyndanámi í Noregi. „Sagt hefur verið að heimkoma Sigfúsar marki þáttaskil. Hann var fyrsti íslenski ljósmyndarinn sem náði að gera ljósmyndun að lífsstarfi – og var frábær ljósmyndari, einn sá allra merkilegasti sem hér hefur starfað, til þessa dags.


Íslensk ljósmyndun var orðin til,“ skrifar Einar Falur.
“Hvað gerir ljósmynd góða?” spyr hann. “Eða áhrifamikla? Hvaða ljósmyndari er góður og hver síðri? Þar koma margir þættir inn. Fagurfræðilegt mat, sem er huglægt og persónulegt, skiptir líklega mestu þegar myndverk eru metin út frá formrænum eigindum sínum. Og vissulega þarf að setja sköpunarverkin í sögulegt samhengi. Hugsa um stefnur og strauma í tímanum, hugmyndafræði í listum yfirleitt og afstöðu listamannanna – ljósmyndaranna. Það þarf einnig að skoða heildarverkið. Hvað liggur eftir ljósmyndarana? Náðu þeir, og jafnvel fyrir tilviljun, nokkrum góðum myndum, en voru annars bara þokkalegir iðnaðarmenn? Eða lögðu þeir mikinn metnað í sköpunina, stefndu að því að skapa einstæð myndverk? Það eru slíkir gripir sem við viljum sjá, myndir sem láta okkur staldra við og benda: svona var þetta og enginn gat sýnt það betur.”

Í vali sínu á ljósmyndurum og myndum þeirra beinir Einar Falur einkum sjónum að manninum, mannlífi og hinu manngerða í umhverfinu. Hann segir að ekki sé þó hægt að líta fram hjá því að hér hefur ætíð búið fátt fólk í stóru og margbrotnu landi, og náttúru- og landslagsljósmyndun hefur skipað stærri sess hér en víðast hvar. „Ljósmyndavélin gerir það sama á Íslandi og annarsstaðar. Þetta er aðeins skráningartæki. Það eru afstaða og sýn ljósmyndarans á heiminn sem skipta öllu máli.”

Ljósmyndirnar á sýningunni eru í eigu Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafninu, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Morgunblaðsins og ljósmyndaranna. Sýningin var fyrst opnuð á Listasafninu á Akureyri í ágúst og er gerð í sérstöku samstarfi við bókaútgáfuna Sögur ehf. og Þjóðminjasafn Íslands.  Í tengslum við sýninguna kemur út vegleg bók sem Sögur ehf gefur út um ljósmyndarana með texta eftir Einar Fal Ingólfsson og ljósmyndunum á sýningunni. 


Um Einar Fal Ingólfsson:
Sýningarstjórinn Einar Falur Ingólfsson er bókmenntafræðingur og með MFA-gráðu í ljósmyndun frá School of Visual Arts í London. Hann hefur unnið við ljósmyndun og blaðamennsku í á þriðja áratug, þar á meðal sem myndstjóri Morgunblaðsins í 12 ár. Þá hefur hann sýnt verk sín á einka- og samsýningum heima og erlendis.
Einar Falur hefur skrifað fjölda greina um myndlist og ljósmyndun, í Morgunblaðið og ýmis tímarit, og verið sýningastjóri sýninga á ljósmyndum í söfnum í Moskvu, París, Reykjavík og Akureyri.

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is