mynd tengd atburði: CHARLOTTENBORGARÁRIN 1961-1968. Tækifæri og örlög
15. nóvember - 04. janúar 2009  SALUR ll,lll

CHARLOTTENBORGARÁRIN 1961-1968. Tækifæri og örlög

Þessi sýning setur verk Sveins Björnssonar í samhengi verka eftir lítinn hóp málara, sem lagði stund á nám við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn og sýndi saman á Charlottenborg á tímabilinu 1961 – 1968. Undirtitill sýningarinnar dregur fram að þó að tækifæri gefist til að helga sig listinni verður ekki vikist undan ölögunum sem oft hafa annað í huga. Þetta á við um þá alla; Svein Björnsson, Henrik Vagn Jensen, Niels Vagn Jensen, Per Henrik Friis og Ib Thorup en ferill þeirra var hver með sínum hætti. Verkin á sýningunni eru öll frá þessum mótununarárum listamannanna, teikningar og málverk sem sýna einkenni hvers og eins. Sýningunni er fylgt úr hlaði með riti þar sem örlagavefur félaganna er rakinn og birtar greinar og frásagnir af Charlottenborgarsýningunum og mótunarárunum í Kaupmannahöfn.


Sýningin verður sett upp árið 2009 í Kaupmannahöfn.


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is