Föstudaginn 28. nóvember var opnuð sýning á nýjum myndskreytingum eftir Brian Pilkington af íslensku jólasveinunum, Grýlu og Leppalúða. Sýningin mun standa fram á þrettándann og er tilvalið að koma með börnin til að skoða þessar vönduðu teikningar og bækur um jólasveinana um leið og jólaþorpið í Hafnarfirði er heimsótt.
Brian Pilkington er fæddur í Englandi 1950. Hann er þekktur fyrir snjallar bókaskreytingar og hefur skrifað og myndskreytt fjölda barnabóka, bæði fyrir íslenskan og erlendan markað. Meðal bóka Brians má nefnaa Örkin hans Nonna (1988), Afi gamli jólasveinn (1990), Ástarsaga úr fjöllunum (höfundur texta: Guðrún Helgadóttir 1981), Hundrað ára afmælið (höf. texta Þráinn Bertelsson 1984) og Blómin í túninu (höf. texta Ingibjörg Sigurðardóttir, 1985). Árið 2003 hlaut Brian Dimmalimm, íslensku myndskreytiverðlaunin fyrir bók sína Mánasteinar í vasa.
Á síðustu árum hafa bækur Brians um íslenska þjóðtrú og vættir vakið athygli innanlands og utan og eru myndskreytingar hans af jólasveinunum skemmtileg viðbót í þá flóru
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |