mynd tengd atburði: Í barnastærðum - Íslensk og alþjóðleg hönnun fyrir börn
13. mars - 09. maí 2010  

Í barnastærðum - Íslensk og alþjóðleg hönnun fyrir börn

Í barnastærðum er sýning sem veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Bæði verður sýnd íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum sýningarinnar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Mikill hluti þess sem unnið hefur verið hér á landi eru húsgögn og leikföng sem hönnuðir, arkitektar og listamenn hafa unnið fyrir sín eigin börn og fæst hefur komist í almenna framleiðslu. Eldri hluti sýningargripanna hefur ekki verið mikið sýndur opinberlega og er sýningin því einstakt tækifæri til að kynnast lítt þekktum verkum annars þekktra höfunda. Verk yngri hönnuða hafa meira farið í almenna framleiðslu og eru nokkur dæmi um slík verk á sýningunni. Einnig eru á sýningunni fjöldi hluta yngri hönnuða sem bera merki þeim krafti sem einkennt hefur íslenska hönnun á undanförum árum. Flestir erlendu hlutirnir eru eftir vel þekkta hönnuðir og hafa ýmist haft áhrif á íslenska hönnun eða sækja í svipaðar hugmyndir og setja þannig íslensku hlutina í alþjóðlegt samhengi.
Í tilefni sýningarinnar hafa þrír ungir hönnuðir unnið nýsköpunarverkefni og tekið að sér að hanna fyrir börn. Þau höfðu frjálsar hendur um það hvernig þau tókust á við verkefnið og er árangur vinnu þeirra á sýningunni auk þess sem sköpunarferlinu eru gerð skil.  Nýsköpunarverkefnin eru unnin í samstarfi við Hönnunarsjóðinn Auroru.  

Skemmtilegt innlegg í sýninguna er vinna nemenda í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands en þau hönnuðu og smíðuðu kassabíla innblásna af hugmyndum frægra hönnuða. Kassabílarnir verða sýndir en ungir sýningargestir fá einnig að kanna notagildi þeirra og aka um í safninu. Þannig skiptist sýningin annarsvegar í hefðbundið sýningarrými þar sem hlutir eru sýndir og þeim gerð skil með textum og upplýsingum um höfunda og hinsvegar rými þar sem gestir á öllum aldri geta prófað sýningargripi og kannað þannig notagildi þeirra og hugmyndirnar að baki þeim. Einnig verður hluti safnsins lagður undir smiðju þar sem gestir geta notað innblástur sýningarinnar í eigin sköpun.

Sýningarstjóri er Tinna Gunnarsdóttir hönnuður. Sýningin er unnin í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands sem leggur til marga sýningargripi og faglegan stuðning. Sýningin nýtur stuðning Safnasjóðs, menntamálaráðuneytis og verslunarinnar Epal.

Viðamikil dagskrá verður í boði fyrir gesti safnsins á öllum aldri en einnig er boðið upp á fræðslu fyrir skólahópa sem bæði geta tekið þátt í leiðsögnum og listsmiðjum. Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna auk þess sem sýningarstjóri og hönnuðir ræða um verk sín við gesti. Sýningin er hluti af Hönnunarmars 18. – 21. mars og Barnamenningarhátíð 19. – 25. apríl.  Sjá dagskrána hér



Texti frá sýningarstjóra:

Hugarheimur barna er margslunginn og hefur verið uppspretta sagna og ævintýra frá ómunatíð. Það þarf oft ekki mikið til þess að koma ímyndunarafli þeirra af stað og nægir þar að nefna gömlu íslensku barnagullin, þar sem bein, horn og tennur stóðu traustum fótum sem fuglar, spendýr og óvættir.

Í ævintýrinu Leggur og skel eftir Jónas Hallgrímsson segir frá því þegar leggur gerir hosur sínar grænar fyrir skel, en saman liggja þau í gullastokki drengs nokkurs. Skelinni fannst leggurinn ekki samboðinn sér þar sem hún væri úr sjó og þóttist töluvert merkilegri. Leggurinn fékk þó uppreisn æru, þegar eftirfarandi atvik átti sér stað.

En nú kom drengurinn, sem átti gullastokkinn, og tók legginn og batt um hann rauðan þráðarspotta og reið honum um pallinn, og seinast tók hann látúnsbólu og rak í endann á honum; það var ekki mjög ljótt að sjá skína á bóluna, þegar leggnum var riðið.

Það er mikil áskorun að hanna fyrir hinn óútreiknanlega heim bernskunnar, að auðga ímyndunarafl barnsins og efla þroska þess með hjálp efnislegra hluta. Gamla sagan um legginn og skelina þykir nú framandi en þegar betur er að gáð fara öll börn í gegnum það að velta við húsgögnum og umbreyta í ókunna heima. Skiptir þá ekki máli hversu mikið er til af allskonar leikföngum, því sköpunarkraftur æskunnar og frumkvæði til að sjá hluti í nýju ljósi lifir allt af.

Þegar valið var á sýninguna var sérstakur gaumur gefinn hlutum sem vinna með og ýta undir opinn og skapandi anda æskunnar í stað þess að njörva hann niður með stöðnuðum ímyndum. Tré verður að fatastandi, fugl að herðatré og fiskibein að furðuverum. Þá reru þeir Manfreð Vilhjálmsson og Dieter Roth á svipuð mið þegar þeir notuðu flotbauju sem sessu á koll sem þeir hönnuðu fyrir unglingastaðinn Lídó árið 1959.

Þegar hrært er upp í samhengi hlutanna og þeir færðir úr sínu vanalega umhverfi þá öðlast þeir nýjan tilgang, nýir möguleikar skapast. En það er einmitt þetta sem hvert barn gerir ómeðvitað í gegnum sitt þroskaferli. Það sem listamaður gerir að ígrunduðu máli gerir barnið vegna eðlishvatar sinnar til að þroskast, læra og skilja.

Hegðunarmunstur barna hefur verið mörgum hönnuðinum innblástur. Það eru fjölmörg dæmi um að húsgögn séu hönnuð með það í huga að auðvelt sé að velta þeim á allar hliðar. Sæti breytist í borð, borðið í hásæti, hásætið í helli, hellirinn í virki eða eitthvað allt annað. Þannig vann spænsk- breski hönnunarhópurinn El Ultimo Grito út frá heimi ímyndunaraflsins við hönnun leikfanga-húsgagnsins Mico sem þýðir api á spænsku. Apann má nota sem stól eða borð til að teikna á, en honum er líka hægt að velta við, rugga eða ríða eins og leggnum forðum daga.

Á sýningunni er bæði íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum hennar er að skoða verk íslenskra hönnuða. Mikill hluti þess sem unnið hefur verið hér á landi eru húsgögn og leikföng sem hönnuðir, arkitektar og listamenn hafa unnið fyrir sín eigin börn og fæst hefur komist í almenna framleiðslu. Eldri hluti sýningargripanna hefur þannig ekki verið mikið sýndur opinberlega og er sýningin því einstakt tækifæri til að kynnast lítt þekktum verkum annars þekktra höfunda. Sýningin ber einnig vitni þeim krafti sem einkennt hefur íslenska hönnun á undanförum árum en verk yngri hönnuða hafa meira farið í almenna framleiðslu og eru nokkur dæmi um slíka hluti á sýningunni. Flestir erlendu hlutirnir eru eftir vel þekkta hönnuði sem hafa ýmist haft áhrif á íslenska hönnun eða sækja í svipaðar hugmyndir og setja þannig íslensku hlutina í alþjóðlegt samhengi.

Í tilefni sýningarinnar hafa þrír ungir hönnuðir unnið nýsköpunarverkefni og tekið að sér að hanna fyrir börn. Þau höfðu frjálsar hendur um það hvernig þau tókust á við verkefnið og er árangur vinnu þeirra á sýningunni og fyrir utan safnið. Hönnuðirnir eru þau Hanna Jónsdóttir, Haraldur Civelek og Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir.

Nemendur í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands taka einnig þátt í sýningunni en þau hönnuðu og smíðuðu kassabíla innblásna af hugmyndafræði þriggja heimsþekktra hönnuða. Ungir sýningargestir fá að kanna notagildi þeirra og aka um í safninu. Þannig skiptist sýningin annarsvegar í hefðbundið sýningarrými, þar sem hlutir eru sýndir og þeim gerð skil með textum og upplýsingum um höfunda, og hinsvegar rými þar sem gestir á öllum aldri geta prófað hluti. Einnig verður hluti safnsins lagður undir smiðju þar sem gestir geta notað innblástur sýningarinnar í eigin sköpun.

Það er við hæfi að gefa ítalska hönnuðinum og listamanninum Bruno Munari (1907-1998) lokaorðin. Hann helgaði stóran hluta ferils síns börnum sem voru honum endalaus uppspretta hugmynda.  Áhugi hans á bernskunni nærðist á forvitni barna, tilfinninganæmi, virðingu og endalausum tilraunum sem kollvarpa hinu hefðbundna. Hann hlúði ekki einungis að börnum heldur taldi hann mikilvægt að hlúa að barninu í hverjum manni.

Með því að geyma bernskuna innra með sjálfum sér í gegnum allt lífið varðveitir maður forvitnina sem leiðir til þekkingar, ánægjuna sem fylgir því að skilja og löngunina til þess að miðla.

Tinna Gunnarsdóttir, sýningarstjóri


Nöfn þeirra sem eiga hönnun á sýningunni:

Íslenskir höfundar
Dagur Óskarsson http://www.daguroskarsson.com/
Dieter Roth
Guðmundur Kr. Kristinsson
Gunnar Magnússon
Katrín Ólína Pétursdóttir http://www.katrin-olina.com/
Manfreð Vilhjálmsson
Mundi http://www.mundivondi.net/
Ólafur Ómarsson
Óli Jóhann Ásmundsson ojadesign.is
Róshildur Jónsdóttir www.hugdetta.com
Stefán Snæbjörnsson www.hugdetta.com
Vík Prjónsdóttir http://www.vikprjonsdottir.com/
Þórdís Zoega http://thzoega.vortex.is/
Hugdetta www.hugdetta.com
Guðlaugur Valgarðsson
Lóa Auðunsdóttir http://voluskrin.is/
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir http://www.ihanna.net/ 
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir http://www.umemi.com/
Sigga Heimis http://www.siggaheimis.com/
Nemendur á 1. ári í vöruhönnunardeild við Listaháskóla Íslands

 

Erlendir höfundar:
Eero Aarnio http://www.eero-aarnio.com/
Nanna Ditzel http://www.nanna-ditzel-design.dk/
Charles & Ray Eames http://www.eamesgallery.com/
Hella Jongerius http://www.jongeriuslab.com/
Mogens Koch http://www.mogens-koch.com/
Michael Young http://www.michael-young.com/
Maartje Seenkamp
Ole Petter Wullum
Company / Aamu Song http://www.com-pa-ny.com/
Satyendra Pakhalé http://www.satyendra-pakhale.com/
El Ultimo Grito http://www.eugstudio.com/


Nýsköpunarverkefni ungra íslenskrar hönnuða:
Hanna Jónsdóttir www.hannajonsdottir.com
Haraldur Civelek www.icomefromreykjavik.com
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir http://www.umemi.com/


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is