mynd tengd atburði: Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu - Erling T.V. Klingenberg
20. maí - 20. júní 2010  

Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu - Erling T.V. Klingenberg

Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu er yfirskrift sýningar á verkum Erlings T.V. Klingenberg sem verður opnuð með gjörningi í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, næstkomandi fimmtudagskvöld 20. maí kl. 20. Opnunin verður viðburður sem mun skilja eftir sig sjálfa sýninguna en hún verður að öðru leyti byggð á videóverki, skúlptúr og málverki svo fátt eitt sé nefnt.

Yfirskrift sýningarinnar vísar til umfjöllunarefnis sem Erling hefur talsvert fengist við en það er spurningin um það hvað það er að vera listamaður. Þetta verk eins og mörg fyrri verka hans hverfist um hans eigin persónu og mörkin sem eru eða eru ekki á milli einkalífs og opinbers lífs. Í gjörningnum beinir hann athyglinni að eigin persónu, líkama og tilvist og undirstrikar þessa þætti einnig í sýningunni með málverki og skúlptúr sem varpa fram spurningum um frummynd og eftirmynd, tilbúning og upprunaleika. Er Erling T.V. Klingenberg raunveruleg persóna?  

Þátttakendur í virkjun sýningarinnar eru The Stimulators en það eru þau Helgi Svavar Helgason, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, Ómar Guðjónsson, Heiða Eiríks, Bóas Hallgrímsson og Óttarr Proppé auk þeirra taka þátt Kvennakór Öldutúns, Karl Jóhann Jónsson og Klingenberg Klúbburinn.

Erling T.V. Klingenberg (f.1970) hefur verið atkvæðamikill í íslensku listalífi á undanförnum árum en hann hefur um árabil rekið Kling og Bang sýningarýmið ásamt öðrum listamönnum. Erling lauk prófi í myndlist frá Myndlista- og Handíðaskóla Íslands árið 1994. Á meðan hann stundaði nám þar var hann skiptinemi við Fachhochschule fur Bildende Kunst í Kiel í Þýskalandi. Hann stundaði síðan framhaldsnám bæði í Þýskalandi og Kanada og lauk MFA gráðu við Nova Scotia College of Art & Design í Halifax. Erling hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði á Íslandi og erlendis.

 


Erling T.V. Klingenberg skapar myndlist um hvað það er að vera listamaður og beinir sjónum að faglegum en ekki síður tilvistarlegum spurningum því tengdum. Verkin hverfast um hans eigin opinberu ímynd og útiloka að því er virðist öll merki um að sú persóna eigi sér nokkuð einkalíf. Erling T.V. Klingenberg gæti allt eins verið tilbúinn karakter; ,,listamaður í líkama rokkstjörnu”, eins og hann heldur þráfaldlega fram. Hann notar ljósmyndir, skúlptúra, gjörninga og myndbandsverk til að beina athygli að eigin líkama, andliti og ímynd á alla mögulega vegu. [...] Verkin eru sem slík kaldhæðnisleg myndbirting þess að skapa list yfir höfuð þegar sú viðleitni skilar í raun aðeins bergmáli þess einstaklings sem að þeim stendur.  
Markús Þór Andrésson, Icelandic Art Today, 2009

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is