mynd tengd atburði: Staðir - Friederike von Rauch
16. maí - 20. júní 2010  

Staðir - Friederike von Rauch

Þýski ljósmyndarinn Friederike von Rauch (f.1967) sem hefur vakið athygli fyrir tærar og kyrrlátar ljósmyndir af þekktum og óþekktum stöðum. Í myndum sínum leitast hún við að sýna óvenjuleg sjónarhorn af stöðum sem eru mannlausir og eyðilegir. Hún gerir tilraun til að afmá sögu og táknræna merkingu staðanna svo myndirnar verða draumkenndar og tímalausar. Með sérstakri næmni nær hún að glæða myndefnið lífi og notar til þess tækni ljósmyndarinnar og náttúrulega lýsingu hvers staðar fyrir sig. Á sýningunni verða ljósmyndir sem Friederike von Rauch tók á Íslandi þegar hún dvaldi á listamannasetrinu að Bæ í Skagafirði. Sýn hennar á landið og umhverfi okkar er einstök og áhugavert innlegg í þá umræðu sem verið hefur hér á landi um umhverfismál. Sýningin nýtur stuðnings Goethe-Institut og er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010.

Friederike von Rauch er menntaður iðnhönnuður og silfursmiður en sneri sé að ljósmyndun eftir að hafa unnið við val á tökustöðum fyrir kvikmyndir. Hún hefur haldið einkasýningar og verið valin á samsýningar meðal annars í Martin- Gropius-Bau í Berlín. Ljósmyndir von Rauch hafa verið gefnar út í bókum og nýlega hefur bók um Neues Museum í Berlín og arkitektinn David Chipperfield með ljósmyndum eftir hana hlotið viðurkenningar.


---

Um listamanninn:
Friederike von Rauch er einn þeirra listamanna sem hafa lag á því að ná tökum á áhorfandanum frá fyrstu stundu, en tær bygging mynda hennar þar sem engu er ofaukið kemur áhorfandanum sífellt á óvart. Myndirnar einkennast af miklum einfaldleika, listakonan íhugar vandlega nálgun sína við viðfangsefnið og undirbýr verkin af kostgæfni. Von Rauch sækir myndefni sitt eingöngu til raunverulegra staða, og um langt skeið hefur landslag þar sem byggingarlist kemur við sögu verið henni auðug uppspretta innblásturs. Vinnuaðferð hennar markast af ótrúlegri nákvæmni í tækni og framkvæmd, auk þess að byggja á afar skertu úrvali myndrænna þátta. Þessi ströngu höft eiga þátt í því að ljá myndum hennar sterkt áhrifavald. Gegnumgangandi og algjör útilokun manneskjunnar frá myndfletinum dregur fram sérstaka dulúð. Myndirnar gefa til kynna draumkenndan tómleika og tímaleysi. Listakonan útilokar allt yfirborðskennt drama, tjáningu og frásögn. Myndir hennar ná að byggja upp sérstaka spennu vegna þess að áhorfandinn fær ekkert að vita um ytra samhengi þeirra og þarf að láta sér nægja þær naumu upplýsingar sem þær veita. Áferð, knappar vísbendingar um líkamleg tengsl og efni, lágmarks ummerki. Þrátt fyrir að í hinum endanlegu ljósmyndum felist hnitmiðuð og samþjöppuð niðurstaða, tilkomin eftir langa leit sem markast af þröngum skorðum og ströngu vali, eru þær ekki eins og myndagáta sem hægt er að leysa þegar áhorfandinn uppgötvar um hvaða stað eða samhengi er að ræða. Vitneskja um staðarnöfn eða byggingar bætir engu við dýpri skilning á myndum hennar. Sjónarhornið og andrúmsloftið sem hún fangar á þessum stöðum skiptir mestu máli. Ljósmyndir Friederike von Rauch búa yfir auðkenndu og persónulegu myndmáli er nær undantekningarlaust, ásamt staðarvali hennar og sérstakri nálgun við myndefnið, inniheldur notkun flæðandi dagsljóss. Jöfn og mistruð birtan gerir henni kleift að skapa skilyrði sem eru nær laus við skugga og gefa efnislegum og byggingarlegum formum mýkt. Auk hinnar sérstöku birtu er litum haldið í lágmarki. Myndirnar tilheyra naumhyggjustefnu í ljósmyndum, sem einkennist af strangri takmörkun myndrænnar ertingar og nær algjörri útilokun á sjónrænum skírskotunum. Uppbygging og samhengi þessara ljósmynda er þess eðlis að hver um sig getur staðið sem sjálfstætt verk, en í samhengi hver við aðra skapa þær heild sem eykur á vitneskju okkar um rými og staði raunveruleikans, varpar ljósi á þætti sem við tækjum ef til vill ekki eftir að öðrum kosti. Ljósmyndir Friederike von Rauch endurspegla persónulega sýn hennar á þá staði sem hún hefur uppgötvað og um leið móta þær skilning okkar á raunveruleikanum, birta okkur umhverfið með eiginleikum hennar eigin, sjónræna tungumáls.

Dr. Andres Lepik,  MoMA, The Museum of Modern Art, NY
Ragna Sigurðardóttir íslenskaði.

   

 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is