26. júlí - 24. ágúst 2008 Bylgjulengdir
Creighton Michael
Verk hins þekkta bandaríska myndlistarmanns, Creighton Michael verða á tveimur mynd-listarsýningum á höfuðborgarsvæðinu næstu vikurnar. Sýningarnar verða opnaðar með nokkurra daga millibili, hin fyrri í Hafnarborg laugardaginn 26. júlí og sú seinni í Start Art þann 31. júlí. Á sýningunni í Hafnarborg verða skúlptúrar og grafíkverk. Creighton Michael vinnur verk sín í ýmsa miðla, en í öllum verkum sínum leggur hann fyrst og fremst áherslu á teikningu. Hann vinnur með liti og þrykk og teiknar á pappír, auk skúlptúrteikninga í ýmis efni.
Chreighton Michael kom fyrst til Íslands árið 2004 og segir hann land og þjóð hafa fléttast inn í listsköpun hans síðan, bæði sem innblástur og sem umgjörð um verkin. Þau verk sem verða á sýningum hans nú eru til orðin fyrir áhrif af dvöl hans á Íslandi. Creighton Michael útskrifaðist frá Háskólanum í Washington, St Louis, Missouri, með M.F.A. Master of Fine Art (Painting/Multi-Media) árið 1978 og hefur unnið að list sinni síðan.
Listamaðurinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, m.a. Golden Foundation for the Arts Grant (málverk) árið 2000, verðlaun frá New York Foundation for the Arts og Arts Fellowship (skúlptúr), Pollock Krasner Foundation Grant og Edward Albee Foundation Fellowship, hvort tveggja árið 1985.
Creighton Michael hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga í þekktum söfnum og galleríum í Bandaríkjunum og víða um heim. Verk hans eru í eigu virtra listasafna, m.a. The Brooklyn Museum of Art, The Denver Art Museum, The Neuberger Museum of Art, The High Museum of Art, The Mint Museum of Art, The Munson-Williams-Proctor Institute Museum of Art and the National Gallery of Art. The John and Maxine Belger Family Foundation, The David Winton Bell Gallery, Brown University
Creighton Michael býr og starfar í New York. Hann verður viðstaddur opnun sýninganna hér.