mynd tengd atburði: Keramik frá Nikaragua
26. júlí - 24. ágúst 2008  

Keramik frá Nikaragua

Níkaragva er stærsta land Mið-Evrópu og keramik þaðan á sér djúpstæða menningarlega sögu.  Undanfarna þrjá áratugi hafa bæði tækni og gæði þessara afurða þróast mikið og framboð sömuleiðis. Nú í fyrsta sinn í sögunni er samtímakeramik frá Níkaragva til sýnis í evrópskum söfnum. Sú sýning sem nú er sett upp í sölum I og II í Hafnarborg kemur hingað frá Eistlandi, en  hefur áður verið sýnd í þremur dönskum söfnum, í Alþjóðlega keramiksafninu, Funen listamiðstöðinni í Silkeborg á Jótlandi og í Listiðnaðarsafninu (Kunstindustrimuseet) í Kaupmannahöfn. Sýningin kemur hingað til lands með styrk frá Norræna menningarsjóðnum. 

Ýmsir fræðimenn sem rannsakað hafa menningu Níkaragva telja að þetta skrautlega og fagra keramik hafi verið dýrmætasti varningurinn í San Juan héraðinu á forsögulega skeiðinu líkt og jaðar, hrafntinna, og gull í öðrum héruðum. Ekki hefur verið gert miklar rannsóknir á sögu Níkaragva fyrir Kólumbus tímann né er vitað um ákveðna notkun á þessu keramiki.  Hinsvegar telja fræðimenn að fíngert keramik hafi verið notað í trúarlegum tilgangi og að pottarnir hafi verið ílát eða ker notað fyrir fórnir.

Ef til vill má segja að keramik frá Níkaragva sé nú aftur hafið upp í þann sess sem það hafði fyrr á tímum, en aldagömul keramikverk eru til í öllum helstu söfnum heims. Nú eru það keramikverk eftir samtíma listamenn, verk sem byggð er á þessum gömlu hefðum sem vekja athygli. Sýningin er skipulögð af Alþjóðlega keramiksafninu í Danmörku en forstöðumaður þess safns, Lise Seisboell, fór sérstaklega í heimsókn til landsins til að kynna sér verkin og taldi hún að það væri mikill fengur að því að taka þau til sýningar. Sýningin í Alþjóðlega keramiksafninu var opnuð í september árið 2006. Sýningin vakti mikla athygli og varð fjölsóttasta sýning safnsins sl. 10 ár. Á margan hátt hefur sýningin haft mikla þýðingu fyrir þátttakendur, það er þá sem unnið hafa keramikverkin, en margir þeirra þekktust ekki áður.

Vönduð sýningarskráin var gefin út í tilefni sýningarinnar, þar sem sérfræðingar eins og fornleifafræðingurinn Edgar Espinoza Perez frá Nikaragva og Les Field professor í menningarmannfræði skrifa um listamennina og hlutverk þeirra í menningu Nikaragva.
Fyrir fimm hundruð árum var evrópska hernámið í Níkaragva en í dag eru leirkerasmiðir og listamenn frá Níkaragva að leggja undir sig Norðurlöndin með verkum sínum.

Þátttakendur eru eftirfarandi: Cornelio Cano, Emmanuel Maldonado, Gregorio Bracamonte, Helio Gutierrez, Horacio Salazar, Mario Salazar, Javier Gallegos, Jose Ortiz, Juan Paulino Martinez, Luis Gutierrez, Loma Panda, Rogelio Gutierrez Nicaragua, Raul Quintanilla, Saul Carballo, Teodulo Potosme, Vladimir Norori, Ducale Grande, Candido Jiménez, Ena Bracamonte og Miguel Maldonado.


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is