05. maí - 13. maí 2010 í kaffistofu
Lækjarlitir í Hafnarborg
Samsýning myndlistarfólks frá Læk í veitingasölu Manns lifandi í Hafnarborg á vegum listahátíðarinnar List án landamæra. Lækur í Hafnarfirði er staður fyrir fólk sem átt hefur við geðraskanir að stríða. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og styrkja þannig andlega og líkamlega heilsu. Mikil áhersla er lögð á menningu og listir í starfsemi Lækjar. Sýnendur eru: Guðrún Guðlaugsdóttir, Gyða Ólafsdóttir, Kristinn Þór Elíasson, Jónína Pálsdóttir, María Strange og Smári Eiríksson. Sýningunni lýkur þann 13. maí.
Listahátíðin List án Landamæra hefur sig til flugs í sjöunda sinn vorið 2010. Markmið hátíðarinnar er að fatlaðir og ófatlaðir vinni saman að ýmsum listtengdum verkefnum, með því er verið að vísa til að listin hafi engin landamæri og með öflugu samstarfi ólíkra hópa er verið að brjóta niður ýmsa ósýnilega múra sem setja fólk á mismunandi bása. Með hátíðinni er líka verið að gefa fólki kost á að kynnast og skemmta sér óháð fötlun.
Sjá vefsíðu Listahátíðarinnar List án landamæra
hér