mynd tengd atburði: Þættir - Björg Þorsteinsdóttir
10. janúar - 15. febrúar 2009  

Þættir - Björg Þorsteinsdóttir

Í sölunum á neðri hæð safnsins verða sýnd ný verk eftir myndlistarkonuna Björgu Þorsteinsdóttur. Hér eru á ferðinni málverk og teikningar þar sem listakonan teflir saman efnum og tækni á nýstárlegan hátt. Hún tekst meðal annars á við shiboritækni á austurlenskan pappír og teikningu á svífandi léttum skúlptúrum og lágmyndum.

 

Björg Þorsteinsdóttir er fædd í Reykjavík 1940. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1960 og teiknikennaraprófi frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1964. Hún stundaði einnig nám í grafík við sama skóla, sótti tíma í teikningu og málun við Myndlistaskólann í Reykjavík í þrjú ár og var við nám við Staatliche Akademie der bildenden Künste í Stuttgart um skeið. Á árunum 1971-1973 var Björg styrkþegi frönsku ríkisstjórnarinnar og lagði stund á málmgrafík við Atelier 17 hjá S.W. Hayter og steinþrykk við École Nationale Supérieure des Beaux Arts í París.

Í upphafi myndlistarferils síns málaði Björg einkum olíumálverk en á fyrstu einkasýningu sinni í Unuhúsi í Reykjavík 1971 sýndi hún þó eingöngu ætingar. Næstu ár á eftir fékkst Björg aðallega við grafík en í seinni tíð hefur hún lagt mesta rækt við málun með akrýllitum og vatnslitum. Á ferli sínum hefur hún málað, teiknað, unnið í grafík og gert collageverk. Hún hefur haldið yfir 30 einkasýningar og tekið þátt í fjölda alþjóðlegra samsýninga í flestum löndum Evrópu, nokkrum löndum Asíu og Afríku, í Bandaríkjunum og Ástralíu.
 
Björg hefur verið stundakennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík og var forstöðumaður Ásgrímssafns árin 1980-1984 og situr nú í fulltrúaráði Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Þá hefur hún starfað að félagsmálum myndlistarmanna, átt sæti í stjórn Félags íslenskra myndlistarmanna og félagsins Íslensk grafík.

Verk Bjargar er að finna í opinberum söfnum og einkasöfnum hér heima og erlendis, m.a. í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Háskóla Íslands, Lista- og menningarsjóði Kópavogs, Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, Listasafni Árnessýslu, Norræna húsinu í Reykjavík, Norðurlandahúsinu í Færeyjum, Trondhjems kunstforening og Museet for Internasjonal Samtidsgrafikk, Fredriksstad, Noregi, Norrköping og Södertälje Kommune, Svíþjóð, Nuuk í Grænlandi, Bibliothèque Nationale, París og Musée des Beaux Arts, Caen, Frakklandi, Museo Nacional de Grabado Contemporaneo, Madríd, Spáni, Museum of Contemporary Art, Skopje, Makedoníu, Museum of Art, Lodz, Póllandi, Museum of Universal Graphics, Egyptalandi og víðar.

Björg hefur verið gestalistamaður í vinnustofum í Cité Internationale des Arts, París og Villa Arson, Nice, Frakklandi; Ragdale Foundation, Lake Forest, Bandaríkjunum; Skandinavisk Forenings Kunstnerkollegium, Róm, Ítalíu, og Listamiðstöðinni Straumi við Hafnarfjörð. Hún hefur verið staðarlistamaður í Skálholti.
Viðurkenning fyrir grafík á alþjóðlegri grafíksýningu í Entrevaux, Frakklandi, 1970. Verðlaun fyrir grafík á alþjóðlegri sýningu í París, 1972. Verðlaun á alþjóðlegri grafíksýningu í Madríd, Spáni, 1976. Viðurkenning fyrir vatnslitamyndir á alþjóðlegri vatnslitasýningu í Plunge, Litháen 2004. Björg hefur hlotið starfslaun úr Launasjóði myndlistarmanna.
Helstu einkasýningar:
Unuhús, Reykjavík 1971
Norræna húsið, Reykjavík 1974, 1979, 1985, 1988, 1989 og 1995
Cité Internationale des Arts, París 1985
Gallerí Borg, Reykjavík 1985
Slunkaríki, Ísafirði 1987 og 1989
Listasafn ASÍ, Reykjavík 1990
Gallerí Ísland, Ósló 1998
Hallgrímskirkja, Reykjavík 1999
Grafarvogskirkja, Reykjavík 2002
Hafnarborg, Hafnarfirði 1993, 1998, 2003, 2008
Skálholtsskóli 2003
Íslensk grafík, Hafnarhúsinu, Reykjavík 2004
Artótek Borgarbókasafns Reykjavíkur 2005
Grensáskirkja 2007

http://www.umm.is


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is