Sífelldar breytingar veðurfars hér á landi gera okkar daglega umhverfi afar sérstætt. Myndirnar sem veðrið teiknar á landið eru aldrei eins en við tökum varla eftir þeim, svo vön erum við orðin tíðum umhleypingum. Guðrún varpar ljósi á þetta síbreytilega leiksvið okkar með því að fanga kvikar myndirnar og gera þannig skil brotum úr heildarmyndinni. ,,Til að kalla fram áhrif eða samhljóm við liðnar aldir, til að finna tón sem andar í takt við iðandi flekkótt landslagið, stilli ég myndbrotin við hrynjanda, stef og stemmningu í gömlum rímnakveðskap, sem á sinn hátt er bæði viðureign við kvika náttúruna og óður til hennar".
Ný vídeó- og hljóðverk verða frumsýnd á sýningunni á þeim hluta hennar er kallast Veðurlag. Hljóðmyndir vídeóverkanna byggja á gömlum stemmum og vísubrotum sem Guðrún hefur valið úr miklum fjölda stemma og vísna úr okkar sameiginlega menningarsjóði. Fyrir þessa sýningu hefur Guðrún fengið til liðs við sig þá Hróðmar I. Sigurbjörnsson, sem útsetur stemmurnar að nýju, og Steindór Andersen, sem kveður við þær brot úr gömlum rímum.
Í Sverrissal Hafnarborgar á neðri hæð er sá hluti sýningarinnar er kallast Veðursögur þar sýnir Guðrún ljósmyndir. Í Apótekinu er hluti sýningarinnar sem kallast Veðurskrifstofur og er samvinnuverkefni Guðrúnar og útgáfufélagsins Apaflösu (Oddný Eir Ævarsdóttir og Uggi Ævarsson). Á veðurskrifstofum er gerð tilraun til að virkja bæði heilahvelin í lestri á myndlist Guðrúnar með því að fylgja myndrænni hugsun eftir til hliðar við innsetningu og upphengi sýningarinnar.
Veðurskrifstofur er hálf-fræðileg innsetning með veggverki, vinnuborðum og upphengi á prent- og málverkum. Veðurskrifstofur eru forskot á bókverk um myndlist Guðrúnar sem kemur út árið 2010.
GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR
Augun á mér eru full af fjöllum. Snjórinn í hlíðum þeirra heldur fyrir mér vöku. Undir morgun skilst mér að birtan sem af snjónum stafar er skrift, að snjóleifar eru letur sem raðast upp í setningar. En svo kemur þíðan og þýðingin verður önnur en ég ætlaði. Þegar setningabrot hverfa á milli mosa og steina og sameinast öðrum vökum…
Oddný Eir Ævarsdóttir
Brot úr texta fyrir sýninguna STRAUMAR, Gallerí 100° 2005.
HUGLEIÐING UM FJÖLL
,,Fjöllin eru þeim í stað borga“, segir Adam frá Brimum um Íslendinga anno 1070.
Síðan þá höfum við eignast borgir, en þær hafa ekki komið í stað fjalla. Aftur á móti voru fjöllin okkur lengi í stað myndlistar og þegar málarar hófust handa í landinu tóku þeir óðara til við fjöllin af viðlíka ástríðu og evrópska málverkið Jesúmyndina og kvenlíkamann áður. Það er því ekki víst að fjöllin sem mæta okkur í náttúrunni séu eins ósnortin og þau sýnast heldur þaulræktuð afurð ótal listaverka. Ýmist í bláu kápunni, grænköflótta kjólnum eða hvíta serknum – fyrir utan öll millistigin á leið úr og í. Jarðbundin og himnesk í senn.
Pétur Gunnarsson, rithöfundur 1995
TIL GUÐRÚNAR
Einhverra hluta vegna er myndin kvenkynsorð á íslensku. Inúkar – frumbyggjar norðursins – ganga enn lengra. Þeir gefa hverri stelpu sögustaut undireins og hún getur gengið. Með honum teiknar síðan stelpan myndir í snjóinn eða fjörusandinn. Þannig afhenda þeir stelpunum myndlistina til umönnunar heima í kvennahúsi, en strákarnir fara með sönginn og ljóðið í karlahús og ástunda hann þar. Því Inúkar virða kveneðli myndarinnar og karleðli söngsins. Ef þú horfir á mikið landslag í björtu tunglsljósi verður það strax dálítið göldrótt. Formin stækka og einfaldast. Litirnir fá á sig einhvern sálarhroll. En það má líka slökkva á tunglinu og senda þetta mikla land alla leið inní sálina og lofa henni að skína á það galdri sínum lengi og vel. Sakar ekki að hlusta á galdrasöngva og sögur meðan landið bakast í sálarylnum. Löngu seinna grípurðu kanski sögustautinn þinn og málar á léreftið myndir sem enginn veit hvort heldur eru af landinu í skini sálargaldurs eða manneskjunni sjálfri. Sem vonlegt er. Sálin og myndin eru af sama kyni.
Þorgeir Þorgeirsson, rithöfundur 1992
Náms - og starfsferill
Heimasíða www.gudrun.is
Netfang gudrun@gudrun.is
NÁM
Ecole des Beaux Arts, Aix-en-Provence, Frakklandi
Myndlistarskóli Reykjavíkur
VALDAR EINKASÝNINGAR
2008 Myndir, Gallerí Ágúst í Reykjavík
2007 Veðurfar / Weathering, Listasafn ASÍ í Reykjavík
2005 Fjarlægð - nálægð, Skálholt, Listamaður Skálholts
2005 The Thaw, Luise Ross Gallery, New York, USA
2005 Earth´s Dandruff, Dandruff Space, Williamsburg, New York, USA
2004 Flux / Thaw Videó-innsetning, Norrænu sendiráðin, Berlín, Þýskaland
2003 Þoka, Videó-innsetning, Vetrarhátíð, Ráðhús Reykjavíkur
2003 Skaftfell, Seyðisfjörður
2003 Skaftfell, Seyðisfjörður
2000 Af Fjöllum, Hafnarborg, Hafnarfjörður
1998 Luise Ross Gallery, New York, USA
1998 Gallery Ísland, Osló, Noregur
1998 Nordic Heritage Museum, Seattle, USA
1996 Sjónarhóll / Gerðuberg, Reykjavík, Ísland
1995 Fjallshlíðar Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Kópavogi
1986 - 1995, Kjarvalsstaðir í Reykjavík, Gallerí Nýhöfn í Reykjavík, SCAG í Kaupmannahöfn, Gallery Persons & Lindelle í Helsinki, Gallery Orpheus
í Eskilstuna, Svíþjóð, Gallery De Lávei í Drachten, Hollandi, Gallerí Sólon
Íslandus í Reykjavík.
VALDAR SAMSÝNINGAR
2008 Hoffmannsgallerí, Reykjavíkur Akademían, Reykjavík
2007 Að flytja fjöll, Listasafn Árnesinga, Hveragerði
2007 Sequences listahátíðin, vídeóverk sýnt í Gallerí Ágúst í Reykjavík
2007 Leiðin á milli, Þjóðminjasafn Íslands, Reykjavík
2007 Portret af Hallgrími Péturssyni, Hallgrímskirkja, Reykjavík
2007 Vídeó innsetning í Borealis Gallery í Lennox, Massachusets, USA
2006 Hin blíðu hraun Hafnarborg, Hafnarfirði
2006 Overtures on Water, Sequences listahátíðin í Reykjavík
2005 Fall Exhibition, Luise Ross Gallery, New York, USA
2005 Straumar, Gallerí 100°, húsi Orkuveitu Reykjavíkur
2005 Island Kultur, Stockholms Auktionsverk, Svíþjóð
2003 Kolonialen, Bryggen, Kaupmannahöfn, Danmörku
2003 Ferðafuðra, Kjarvalsstaðir, Reykjavík
2002 Moment, Santiago de Compostella, Spáni
2002 Andrá, Listasafn ASÍ, Reykj avík, Ísland
2002 Norræn nútímalist, Hadelands Glasverk, Noregi
2001 Norræn nútímalist, Steninge Slott, Svíþjóð
2001 Í skugga trjánna, Hallormsstaðarskógi
2000 Vetrarmynd, Gallerý Man í Reykjavík
2000 Muro Dipinto Fresku-tvíæringur í Bologna, Ítalíu
2000 New Bedford Art Museum í New Bedford, MA, USA
2000 List í Orkustöðvum, Laxárdal, Þingeyjarsýslu
2000 Hverfingar, Gerðarsafn, Kópavogi
1999 Elementer, Sívali turninum í Kaupmannahöfn, Danmörku
1998 Museum of Contemporary Art í Seattle, USA
1997 Belkaw, Bergisch Gladbach í Gladbach, Þýskalandi
1983 - 1995 Vejle Kunstmuseum í Vejle, Danmörku, Gallery Frank Bustamante, New York, Deutsche Bank, Frankfurt, Þýskalandi, Listahátíð Hafnarfjarðar, Hafnarborg,
Kjarvalsstaðir, Reykjavík, Wang Kunsthandel, Osló, Noregi.
FYRIRHUGUÐ VERKEFNI
2009 Framlag til bókverks/útgáfu í tengslum við sýningar í Dandruff Space, New York
2009 Veðurskrift, einkasýning í Hafnarborg, Hafnarfirði
2009 Drafts, einkasýning í Gallery Luise Ross, Chelsea, New York
FYRIRLESTRAR, SAMKEPPNIR OG KENNSLA TENGD MYNDLIST
2006 Fyrirlestur og kynning á eigin verkum í Listasetrinu Leifsbúð í Prag, Tékklandi
2006 Fyrirlestur og sýning í Herhúsinu á Siglufirði
2005 Fyrirlestur um eigin verk í Listaháskóla Íslands
2000 Valin til að gera tillögu að listskreytingu í nýbyggingu Kennaraháskóla Íslands.
Kennsla og fyrirlestrar í sumarkúrsum Pratt Fine Art Center í Seattle, USA
Fyrirlestur um eigin verk í Nordic Heritage Museum, Seattle, USA
1993 Kennsla og fyrirlestur um eigin verk í De Láwei listasetrinu í Dracten, Hollandi.
Fyrirlestur um eigin verk í Listaakademíunni í Helsinki, Finnlandi
1987 - 1988 Kennsla í Myndlista og Handíðaskóla Íslands
Nefndir og stjórnunarstörf TENGD MYNDLIST
2002-2006 Ritari í stjórn SÍM; Sambandi Íslenskra Myndlistarmanna
2003-2005 Listir, menning, Menntamálaráduneytið
1996-2001 Meðlimur í stjórn Serrasjóðs; styrktarsjóðs fyrir íslenska myndlistarmenn
1994-1996 Formaður FÍM; Félags Íslenskra Myndlistarmanna
1989-1993 Varamaður í stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins.
1989-1992 Formaður sýninganefndar FÍM; Félags Íslenskra Myndlistarmanna
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |