mynd tengd atburði: Í bili
27. ágúst - 23. október 2011  

Í bili

Sýningin vísar til hins sögulega fyrirbæris furðustofu eða Wunderkammer sem talið er marka upphaf safna nútímans. Wunderkammer má rekja til endurreisnarinnar þegar evrópskir aðalsmenn ferðuðust út fyrir sitt nærumhverfi og færðu heim í stofu óvenjulega furðugripi er stungu í stúf við hið þekkta. Gripirnir gátu ýmist verið úr lífríkinu eða manngerðir hlutir, en á þessum tíma kepptust menn um að kynnast heiminum og fyrirbærum hans, flokka þau og skapa þeim sess í þekkingarkerfum. Vísan í tímabil furðustofunnar er áhugavert í samhengi sýningarinnar þar sem það markar upphaf þess að efnislegir hlutir, áferð, form, snerting, lykt og virkni vörpuðu mikilvægu ljósi á þekkinguna um heiminn, í stað ríkjandi trúarlegra kenningasetninga og heimspekilegrar mælskulistar.

Markmið sýningarinnar er að skapa vettvang fyrir gagnrýna umræðu um þekkingarsköpun og hlutverk listasafna í því samhengi. Sýningin er afrakstur tilraunakennds samvinnuferlis þar sem sýnendahópurinn hefur hist reglulega ásamt gestafyrirlesurum úr háskólasamfélaginu. Sýningarstjórinn og listamennirnir hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um inntak og áhugaverða nýtingu safnrýmisins, en auk þess vinna flestir listamennirnir ný verk fyrir sýninguna.

 

Sýnendur eru: Bryndís Snæbjörnsdóttir & Mark Wilson, Daníel Björnsson, Grétar Reynisson, Haraldur Jónsson, Hildigunnur Birgisdóttir, Hugsteypan (Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir & Þórdís Jóhannesdóttir), Ingirafn Steinarsson, Jeannette Castioni, Magnús Árnason, Olga Bergmann, Ólöf Nordal og Skyr Lee Bob (Erna Ómarsdóttir, Guðni Gunnarsson & Lieven Dousselaere).


Sýningarstjóri er Ólöf Gerður Sigfúsdóttir.


Efnt verður til málþings í tengslum við sýninguna þann 15.október.kl. 13.
Lykilfyrirlesari: Sarat Maharaj, sýningarstjóri og prófessor við Malmö Art Academy 
Nánar um dagskrá í tengslum við sýninguna hér.

Aðdragandi
Haustið 2010 var kynnt nýtt verkefni á vegum Hafnarborgar sem ætlað er að gefa sýningarstjórum tækifæri til að koma fram með nýstárlega sýn á myndlist og áhugaverða tillögu að sýningu. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt safn opnar á þennan hátt dyr sínar fyrir sýningarstjórum þó slíkt sé vel þekkt alþjóðlega. Sýningarstjórum var gefinn kostur á  að senda inn tillögur að haustsýningu í Hafnarborg 2011 og óskað eftir tillögum að samsýningum. Sérstaklega var hugað að því að veita tækifæri sýningarstjórum með stuttan feril að baki. Alls bárust sextán tillögur sem flestar uppfylltu þau skilyrði sem sett voru. Listráð Hafnarborgar valdi svo fjórar af þeim tillögum til frekari  skoðunar, en það voru tillögur þeirra: Berglindar Jónu Hlynsdóttur, Bjarka Bragasonar, Margrétar Elísabetar Ólafsdóttur og Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur. Sýningarstjórarnir fjórir eiga að baki ólíkan náms og starfsferil sem tengist myndlist og menningartengdum verkefnum en hafa þó ekki oft tekið að sér hlutverk sýningarstjóra.
Tillaga Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur varð fyrir valinu og bar hún vinnuheitið Undur og stórmerki. Í tillögu Ólafar koma fram hugmyndir um myndlist sem rannsóknaraðferð og vinnu listamannsins sem rannsóknarvinnu sem leiða má saman ólíkar fagstéttir. Tillagan þótti hugmyndarlega sterk og skapa áhugaverðan vettvang í safninu. 



Ólöf Gerður Sigfúsdóttir er forstöðumaður rannsóknarþjónustu Listaháskóla Íslands. Hún er mannfræðingur og hlaut BA í mannfræði frá Háskóla Íslands og MA gráðu í félagsvísindum í University of Chicago 2004. Hún hefur sinnt sýningarstjórastörfum fyrir Gerðuberg og var annar tveggja sýningarstjóra sýningarinnar  Að þekkjast þekkinguna í Listasafni Árnesinga 2010. Einnig hefur hún haldið fyrirlestra, ritað greinar og komið að útgáfumálum.
    


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is