mynd tengd atburði: Kraftur og mýkt - Sigrún Ólafsdóttir
30. ágúst - 28. september 2008  

Kraftur og mýkt - Sigrún Ólafsdóttir

Yfirlitssýning á teikningum og skúlptúrum frá 1996 - 2008

Listakonan Sigrún Ólafsdóttir, fæddist í Reykjavík árið 1963 og býr nú í Saarbrücken í Þýskalandi. Sköpunarkraftur hennar beinist einkum að skúlptúrverkum og teikningum. Henni hefur m.a verið falið að gera stór verk fyrir opinberar byggingar, banka og einkafyrirtæki í Þýskalandi.

Verk hennar eru afar fjölbreytileg, bæði í hugsun og í útfærslu. Leiðarstef hennar er þrívíddarhluturinn og verk hennar vísa sífellt til rýmis og umlykjandi rýmis svo segja má að hún skilgreini það að nýju. Fagurfræðileg tjáningarform spanna mjög breitt svið. Þar má nefna tiltölulega smágerð skúlptúrverk, og skúlptúrinnsetningar sem stundum fylla stórt rými. Í innsetningum hennar eru mörkin milli verksins sjálfs og rýmisins umhverfis það, afmáð með áhrifamiklum hætti.

Sigrún Ólafsdóttir notfærir sér með sannfærandi og sérstökum hætti einfalt myndmál sem á sér rætur í konstrúktífisma fyrri tíma. Jafnvel þegar skúlptúrverk Sigrúnar spanna flóknar og spennuþrungnar rúmvíddir eru þau aldrei flókin, ofhlaðin eða tilgerðarleg. Áreynsluleysi er óaðskiljanlegur þáttur í verkum hennar. Jafnvel stóru skúlptúrverkin hafa fíngert, nánast fágað yfirbragð og þrívíddarlínan er oft megindrifkraftur verksins. Með þessum hætti færir listakonan sig frá línunni yfir yfirborðið að rýminu, frá jörðinni, frá veggnum upp í himininn.

Efniviðurinn sem listakonan notar er jafnframt skýr og einfaldur: tré, stál, ál, gifs og blý. Eitt hráefni er oft mest áberandi í tilteknu verki og ljær því skýrt sjónrænt inntak og sannfæringarkraft.

Sigrún Ólafsdóttir hefur blásið nýju lífi í skúlptúrlist samtímans. Með einföldum aðferðum skapar hún hugmyndarík verk með fjölbreytilegum fagurfræðilegum útfærslum sem hafa algjöra sérstöðu.

Að undanförnu hefur hún gert röð teikninga sem ekki ber að líta á sem „klassískar“ stúdíur, heldur fremur sem sjálfstæðar skúlptúrteikningar. Í þeim gegnir línan einnig lykilhlutverki í myndbyggingunni og skapar hugmyndalega samsvörun við skúlptúrverkin. Teikningarnar sem hún hefur gert allra síðustu árin og eru óvenjulega stórar (100 x 200 cm eða 180 x 180 cm) hafa sérstaka þýðingu í þessu samhengi því að með þeim er sjálf hugmyndin um miðilinn dregin í efa og jafnframt útvíkkuð. Tæknin er sömuleiðis nýstárleg. Hún vinnur með túss og gifsblöndu á striga svo að minnir á málverk. Með þessum hætti tekst henni með sannfærandi hætti að yfirfæra þrívíddarhugsun sína í tvívíddarmynd.

Dr. Richard W. Gassen

Forstöðumaður Wilhelm Hack Museum
Ludwigshafen/Rhine, Þýskalandi
 







 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is