29. september - 23. október 2011
Yfirsýn
Yfirsýn er sýning á ljósmyndaverkum Sigurgeirs Sigurjónssonar ljósmyndara. Í verkum sýnum gerir Sigurgeir óbyggðum Íslands stórbrotin skil í myndum sem allar eru teknar úr lofti. Sjónarhorn fuglsins fljúgandi gefur nýja og óvænta sýn á náttúruna og í ljós koma ótrúlegustu form og litir – alls kyns kynjamyndir í jöklum, ám og vötnum, fjöllum, auðnum og fjörum. Auk þess hefur
Forlagið gefið út samnefnda ljósmyndabók af þessum einstöku myndum.
Sigurgeir hefur sent frá sér fjölda ljósmyndabóka, þar á meðal einhverjar allra vinsælustu bækur sem gefnar hafa verið út með ljósmyndum úr íslenskri náttúru. Hann fæddist í Reykjavík árið 1948. Hann lærði ljósmyndun árin 1965-1969 og var síðan við framhaldsnám í ljósmyndaskóla Christer Strömholm í Stokkhólmi 1970-1971 og í San Diego, Kaliforníu, 1980-1981.
