mynd tengd atburði: Hundrað
29. maí - 21. júlí 2008  

Hundrað

Hundrað 

Byggðasafnið í Hafnarfirði setur upp sýninguna Hundrað en á henni eru til sýnis ljósmyndir sem spanna hundrað ára sögu Hafnarfjarðarkauspstaðar ásamt örsögum. Hér að neðan er hægt að sjá fyrstu örsöguna.

Árið 1908 – 1469 íbúar
Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi 1. júní 1908. Sama dag var fyrsti kjörfundurinn haldinn í Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu. Fundurinn hófst á hádegi og lauk þremur klukkutímum síðar. 25 manns komu á kjörstað, en talið er að um 400 manns hafi verið á kjörskrá. Í Kvásum nýstofnuðu bæjarblaði, segir að bæjarbúar hafi yfirleitt verið ánægðir með kosninguna, einn listi hafi verið i boði „góðir menn og framtakssamir.“. Eitt af fyrstu verkefnum bæjarstjórnarinnar var að koma upp safnþróm enda full þörf á. Neysluvatnið var mengað og upp kom taugaveiki, hafði nýráðinn héraðslæknir því nóg að starfa. Hjálpræðis-herinn setti svip á bæinn og það gerðu líka tveir lögreglu-menn sem ráðnir voru til löggæslu. Báðir voru þeir heljar-menni að burðum og vöktu lögreglubúningar þeirra mikla athygli bæjarbúa. 109 börn voru í barnaskólanum og ungmenni æfðu glímu af kappi með Ungmennafélaginu
17. júní. Bæjarbúar höfðu lifibrauð sitt af sjávarútvegi
og fyrsti togari Hafnfirðinga, Coot, strandaði við Keilisnes.

Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11:00 til 17:00 og fimmtudaga er opið til kl. 21:00. Sýningin stendur til 21. júlí.


 
 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is