mynd tengd atburði: 8+8 Made in Hafnarfjordur
06. september - 05. október 2008  Hafnarborg og Hönnunarsafn Íslands

8+8 Made in Hafnarfjordur

Í tilefni af hundrað ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar opnar sýningin 8+8 Made in Hafnarfjörður, næstkomandi laugardag 6. september kl. 15 í sýningarsalnum Dverg á vegum Hafnarborgar og Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Til sýnis verður afrakstur samstarfs 8 alþjóðlegra hönnuða og 8 hafnfirskra framleiðslufyrirtækja, en verkefnið sýnir fram á þá ónýttu möguleika sem felast í samstarfi hönnuða við fyrirtæki.

Verkefnið hófst í byrjun árs í Hafnarfirði, en á 100 ára afmæli kaupstaðarins þótti ekki úr vegi að minnast mikilvægrar aðkomu bæjarfélagsins að iðnþróun hérlendis gegnum tíðina. Átta hafnfirsk framleiðslufyrirtæki tóku hönnuðum fagnandi í samstarf við að þróa nýja vöru og skapa framleiðslu fyrirtækjanna sérstöðu og ímynd og þar með auka verðgildi framleiðslunnar. Allir unnu hönnuðirnir út frá núverandi sérkennum og  framleiðslumöguleikum fyrirtækjanna.
Margverðlaunaðir hönnuðir á alþjóðlegum vettvangi sem og íslenskir afkastamiklir hönnuðir mæta hér hafnfirskum fyrirtækjum sem flest eru gamalgróin eða byggð á gömlum grunni fyrirtækja eins og t.d. Raftækjaverksmiðju Hafnarfjarðar, Rafha, sem lifir í eldhúsminningu landsmanna. Af fyrrum samstarfsaðilum hönnuðanna má nefna fjölþjóðafyrirtæki, söfn, sýningarhaldara og framleiðendur um allan heim á borð við Lavazza, Vitra, Jean-Paul Gaultier, Britsh Airways, Rosenthal, Nokia, Fornarina, Victoria & Albert Museum í London og100% Design Tokyo.

Fyrirtækin og hönnuðirnir sem taka þátt í verkefninu eru:

Breiður og Johannes Fuchs
Mest og Katrín Ólína
RB rúm og El Ultimo Grito
Málmsteypan Hella og Studio Makkink & Bey
Rafhitun og Borðið
Flúrlampar og Páll Einarsson
Prentheimar og Snæfríð & Hildigunnur

Víða leynast  vannýttir möguleikar í framleiðslufyrirtækjum um land allt. Markmið verkefnisins er að sýna fram á möguleikana sem felast í samstarfi hönnuða við fyrirtæki með það að leiðarljósi að skapa ný tækifæri og innleiða sýn hönnunar að þróun vöru.  Vitund neytenda um gæði, sérstöðu og rekjanleika eykst óðfluga og á þeim forsendum þurfa allar framleiddar vörur að byggja. Þrátt fyrir fremur háan framleiðslukostnað á Íslandi er hægt að skapa sérstöðu og ímynd til að auka verðgildi þeirra. Það er almennt takmark þeirra sem koma að þróun á góðri vöru að vel upplýstur neytandi sé tilbúinn til að greiða meira fyrir einstaka vöru. Hönnuðir þurfa að sjá þau fjölmörgu leyndu tækifæri sem liggja um alla landsbyggðina og fyrirtækin þurfa að læra að nýta sér samstarf við hönnuði.
Mörg dæmi sögunnar sýna hvernig góð hönnun hefur gjörbylt stöðu fyrirtækja og ímynd þeirra alþjóðlega. Fyrirtækin AEG, Apple og Nokia er allt góð dæmi um slík fyrirtæki. Á sýningunni 8+8 Made in Hafnarfjörður eru það ekki þýsk, bandarísk eða finnsk fyrirtæki sem sjá mikilvægi þess  að nýta hönnuði í uppbyggingu sinni og markaðssetningu. Hér hafa hafnfirsk fyrirtæki tekið höndum saman með hönnuðum og ákveðið að halda með þeim inn á nýjar slóðir tækifæranna.


 


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is