mynd tengd atburði: Hafnfirðingar
01. júní - 21. júlí 2008  

Hafnfirðingar

Árni Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður fæddist 11. mars 1927 í Hafnarfirði.  Hann hefur verið ötull í að mynda Hafnfirðinga en það var fyrir 50 árum sem hann fór að hafa áhuga á að taka myndir af eldra fólki á förnum vegi í Hafnarfirði, aðallega af þeim Hafnfirðingum sem lengi höfðu átt þar heima.  Hvatinn að þessum ljósmyndum voru ljósmyndir eftir Gunnar Rúnar frá árunum 1940-50 en þær er að finna í tveimur bókum Magnúsar Jónssonar kennara. 
Á sýningunni eru um 440 ljósmyndir af eldri Hafnfirðingum, sem teknar voru á árunum 1960-92 og eru allar svart hvítar.  Af þeim 580 eldri borgurum sem koma við sögu á myndunum eru 35 á lífi í maí 2008.  Myndirnar eru úr safni 612 ljósmynda úr þremur bindum bókar Árna, ,,Fólkið í Firðinum”, en þar er að finna ýmsan fróðleik um fólkið og húsin, sem sjást á myndunum.  Haustið 1979 hélt Árni sýningu í Góðtemplarahúsinu á myndum úr fyrsta og öðru bindi nefndrar bókar.  Þá voru myndirnar úr síðasta bindinu til sýnis á Hrafnistu 12. apríl til 17. júní 2007.
Við hvert myndspjald eru upplýsingar um fæðingarár þeirra, sem á myndunum eru, hvaða ár myndin er tekin og dánarár þeirra, sem fallnir eru frá.
Sonur Árna, Árni Stefán, hefur annast alla myndagerð og veitt aðra aðstoð við undirbúning sýningarinnar. 

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is