Hafnarfjarðarkaupstaður á aldarafmæli á árinu 2008 og
Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, á 25 ára afmæli.
Af því tilefni verður efnt til hátíðarsýningar á verkum úr safni Hafnarborgar.
Frumkvöðlar að stofnun Hafnarborgar voru þau hjónin lyfjafræðingarnir Sverrir Magnússon og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, en þau ráku Hafnarfjarðarapótek í um 40 ár frá árinu 1947. Árið 1983 gáfu þau Hafnarfjarðarbæ húseign sína að Strandgötu 34 í þeim tilgangi að þar yrði rekin listastofnun sem héldi utan um listaverkaeign bæjarins og yrði vettvangur menningarviðburða; myndlistarsýninga og tónleika. Þau hjónin gáfu til hins nýstofnaða safns á annað hundrað listaverka ásamt góðu bókasafni. Safninu hafa einnig borist veglegar listaverkagjafir, m.a. stórgjöf frá listmálaranum Eiríki Smith, grafíkverk frá Gunnari Ásgeiri Hjaltasyni og Elíasi B. Halldórssyni. Fjöldi annarra listamanna og einstaklinga hafa einnig lagt Hafnarborg til verk auk þess sem keypt hefur verið inn til safnsins jafnt og þétt. Safneignin telur nú rúmlega 1200 verk.
Strax árið 1986 hófst rekstur gistivinnustofu í Hafnarborg og á sama tíma var byrjað að setja upp myndlistarsýningar í litlum sal á annari hæð hússins. Árið 1988 var síðan lokið við endurnýjun á eldri hluta hússins ásamt viðbyggingu og síðan þá hefur Hafnarborg verið vettvangur öflugrar menningarstarfsemi í Hafnarfirði. Listaverkasýningar skipta hundruðum og tónleikar og aðrir menningarviðburðir hafa verið snar þáttur í starfseminni. Forstöðumaður Hafnarborgar frá upphafi hefur verið Pétrún Pétursdóttir.
Þar verður saga safnsins í 25 ár rakin í gegnum safneignina og með textum. Í tilefni afmælisins er áætlað að síðar á árinu verði gefin út vegleg bók um starfsemina og safneign Hafnarborgar.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |