Öld er liðin frá því að Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi. Af því tilefni er efnt til sýningar í Hafnarborg á verkum fimmtíu myndlistarmanna. Þeir fimmtíu myndlistarmenn sem eiga verk á sýningunni í Hafnarborg hafa allir einhver tengsl við Hafnarfjörð. Flestir þeirra eru hér búsettir eða hafa vinnustofur sínar hér, aðrir eiga rætur hér en búa utan bæjarins og nokkrir eru búsettir erlendis. Allir eiga það sameiginlegt að hafa sótt menntun sína í viðurkennda listaháskóla, hér heima og erlendis, og eru starfandi myndlistarmenn. Listamennirnir hafa sjálfir valið verkin en starfsfólk og listráð Hafnarborgar setja sýninguna upp.
Fyrsta sýning ársins hér í Hafnarborg var helguð tuttugu og fimm ára afmæli Hafnarborgar og þar voru verk margra þeirra listamanna sem hér bjuggu en eru nú gengnir, m.a. Gísla Jónssonar, Gunnlaugs Scheving, Gests Þorgrímssonar, Gunnars Ásgeirs Hjaltasonar og Sveins Björnssonar. Á þeirri sýningu voru einnig málverk frá Hafnarfirði eftir Jóhannes Kjarval, Ásgrím Jónsson, Nínu Tryggvadóttur og fleiri listamenn sem heimildir eru um að máluðu hér í Hafnarfirði og í nágrenni bæjarins. Á hátíðarsýningunni sem nú er efnt til eru verk eftir starfandi listamenn. Þeir elstu – Eiríkur Smith, Jón Gunnarsson, Sigrún Guðjónsdóttir og Sigurbjörn Ó. Kristinsson –
stunduðu listnám sitt fyrir og um miðja síðustu öld en yngstu listamennirnir á sýningunni hafa nýlokið námi og eru að hefja sinn feril í myndlistinni.
Menning og listir eru ætíð hvort tveggja í senn, alþjóðleg og staðbundin. Verk listamanna, hvaða form sem þau kunna að taka, bera svipmót þess umhverfis sem þau eru sprottin úr en á sama tíma rata alþjóðlegir straumar og áhrif inn í verkin. Líkt og aðrir, sækja listamenn sér í auknum mæli menntun út fyrir landsteinana og okkur gefast sífellt fleiri tækifæri til að sjá og heyra verk erlendra listamanna hér heima. Sýningin í Hafnarborg spannar ekki einungis verk þriggja kynslóða heldur endurspeglar fyrst og fremst hina gífurlegu gerjun og breidd sem finna má í verkum íslenskra myndlistarmanna nú á dögum.
Vegleg sýningarskrá verður gefin út af þessu tilefni. Ritstjóri hennar er Margrét Elísabet Ólafsdóttir listfræðingur.
Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru:
1. Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdóttir
2. Alda Sigurðardóttir
3. Anna Sigríður Sigurjónsdóttir
4. Anna Snædís Sigmarsdóttir
5. Ari Magnússon
6. Auður Vésteinsdóttir
7. Díana Margrét Hrafnsdóttir
8. Edda Óskarsdóttir
9. Eiríkur Smith
10. Elín Guðmundsdóttir
11. Erling Klingenberg
12. Guðbjörg Magnúsdóttir
13. Guðmundur Karl Ásbjörnsson
14. Gunnhildur Pálsdóttir
15. Gunnhildur Þórðardóttir
16. Gunnlaugur Stefán Gíslason
17. Helga Ármanns
18. Hjördís Frímann
19. Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir
20. Ingiríður Óðinsdóttir
21. Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
22. Jean Antoine Posocco
23. Jóhanna Bogadóttir
24. Jón Gunnarsson
25. Jón Thor Gíslason
26. Jóna A. Imsland
27. Jóna Guðvarðardóttir
28. Jónína Guðnadóttir
29. Katrín Pálsdóttir
30. Kristbergur Ó. Pétursson
31. Kristín Reynisdóttir
32. Kristjana F. Arndal
33. Lárus Karl Ingason
34. Magnús Hjörleifsson
35. Margrét J. Guðmundsdóttir
36. María Elísabet (Marlies) Wechner
37. Ólafur Elíasson
38. Ólöf Björg Björnsdóttir
39. Pétur Bjarnason
40. Pétur Gautur
41. Sigríður Ágústsdóttir
42. Sigríður Ásta Árnadóttir
43. Sigríður Erla Guðmundsdóttir
44. Sigrún Guðjónsdóttir
45. Sigurbjörn Ó. Kristinsson
46. Soffía Sæmundsdóttir
47. Sólveig Baldursdóttir
48. Steindóra Bergþórsdóttir
49 Þóra Breiðfjörð
50. Þóra Þórsdóttir
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |