mynd tengd atburði: Jóna Guðvarðardóttir - Leirskúlptúr
26. apríl - 25. maí 2008  

Jóna Guðvarðardóttir - Leirskúlptúr

Jóna Guðvarðardóttir fæddist árið 1949 í Hafnarfirði.  Hún lauk prófi frá Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1975 og framhaldsnámi við Listiðnaðarskóla Ungverjalands í Búdapest 1987.  Jóna starfaði sem deildarstjóri við Leirlistardeild Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1984-94 og kenndi við skólann til 2000.  Þá hefur hún haldið fyrirlestra við Listaháskóla Íslands frá stofnun hans.  Jóna hefur stundað kennslu í Kyoto í Japan og lengi s starfað sem kennari við listiðnaðarakademíuna í Kecskemét í Ungverjalandi.  Hún hefur stýrt alþjóðlegum Socrates og Leonardo verkefnum og kennt á leirlistarstefnum víðsvegar um heiminn.  Jóna er listrænn ráðunautur við Alþjóðlega keramikstúdíóið í Kecskemét (ICS-International Ceramics Studio), meðlimur í innlendum og erlendum samtökum listamanna, þar á meðal meðlimur í Samtökum íslenskra myndlistarmanna, Leirlistafélagi Íslands og International Academy of Ceramics, sem er æðsta virðingarstaða sem hægt er að ná í leirlistaheiminum. 
Jóna býr og starfar í Ungverjalandi en hefur haft vinnustofu á Íslandi í Hafnarfirði.  Hún hefur haldið einkasýningar á Íslandi, í Ungverjalandi, Króatíu, Þýskalandi, Danmörku, Japan og víðar.  Hún hefur tekið þátt í samsýningum á öllum Norðurlöndunum, í Eystrarsaltslöndunum, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Austurríki, Frakklandi, Spáni, Ungverjalandi, Póllandi, Rússlandi, Króatíu, Tékklandi og á Íslandi.  Jóna hefur unnið til margskonar verðlauna og hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir list sína.  Verk hennar eru m.a. í eigu safna og opinberra stofnana á Íslandi, í Þýskalandi, Danmörku, Finnlandi, Ungverjalandi, Lettlandi og Japan. 

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is