mynd tengd atburði: Hildur Ýr Jónsdóttir - Skúlptúr - Skartgripir
26. apríl - 25. maí 2008  

Hildur Ýr Jónsdóttir - Skúlptúr - Skartgripir

Hildur Ýr fæddist árið 1976 í Hafnarfirði.  Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla 1997 og stundaði nám við hönnunardeild Iðnskólans í Hafnarfirði.  Þaðan lá leiðin í Gerrit Rietveld listaakademíuna í Amsterdam, Hollandi og útskrifaðist hún með BA nám frá nútímaskartgripadeild skólans vorið 2006.  Hildur Ýr hefur tekið þátt í samsýningum hér á Íslandi og í Hollandi, m.a. hönnunarsýningin Magma/Kvika sem haldin var á Kjarvalsstöðum sumarið 2007 og Gallerie Marzee, International Graduation show 2006.  Verk hennar byggja mest á íslenskri náttúru og menningararfleið.  Þau hafa vakið mikla athygli og fengið góða umfjöllun í hönnunartímaritum erlendis.  Hildur Ýr hlaut hvatningarstyrk menningar-og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar 2007.

Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is