mynd tengd atburði: Samræmi - Hildur Bjarnadóttir og Guðjón Ketilsson
29. október - 30. desember 2011  

Samræmi - Hildur Bjarnadóttir og Guðjón Ketilsson

Sýning á verkum tveggja listamanna sem þekktir eru fyrir hugmyndaleg verk byggð á sterkum handverkshefðum. Þau eiga bæði að baki feril sem ber vitni næmi, sterkri rýmishugsun og einstöku handverki, Hildur með vísan í handverkshefðir og sögur kvenna en Guðjón hefur m.a. notað fundin húsgögn og unnið eigin verkfæri sem heimild um ástand mannsin...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Hamskipti  - Hildur Yeoman og Saga Sigurðardóttir
29. október - 30. desember 2011  

Hamskipti - Hildur Yeoman og Saga Sigurðardóttir

Mörkin milli listgreina geta verið óljós. Hönnuðir, arkitektar, ljósmyndarar og listamenn vinna oft á þessum mörkum og nýta eiginleika ólíkra greina sem þó byggja allar að miklu leyti á sjónrænni upplifun.

Á sýningunni Hamskipti er varpað ljósi á samvinnu þeirra Hildar Yeoman fatahönnuðar ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Yfirsýn
29. september - 23. október 2011  

Yfirsýn

Yfirsýn er sýning á ljósmyndaverkum Sigurgeirs Sigurjónssonar ljósmyndara. Í verkum sýnum gerir Sigurgeir óbyggðum Íslands stórbrotin skil í myndum sem allar eru teknar úr lofti. Sjónarhorn fuglsins fljúgandi gefur nýja og óvænta sýn á náttúruna og í ljós koma ótrúlegustu form og litir – alls kyns kynjamyndir í jöklum, ám og vötnum, fjöll...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Í bili
27. ágúst - 23. október 2011  

Í bili

Sýningin vísar til hins sögulega fyrirbæris furðustofu eða Wunderkammer sem talið er marka upphaf safna nútímans. Wunderkammer má rekja til endurreisnarinnar þegar evrópskir aðalsmenn ferðuðust út fyrir sitt nærumhverfi og færðu heim í stofu óvenjulega furðugripi er stungu í stúf við hið þekkta. Gripirnir gátu ýmist verið úr lífríkinu eða manngerði...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Verk úr safneign
23. júní - 25. september 2011  

Verk úr safneign

Á neðri hæð Hafnarborgar er nú sýning á verkum úr safneign. Verkin eru unnin á árunum 1955 – 2009, mest málverk, grafík og höggmyndir og gefa ágæta hugmynd um þá safneign sem orðið hefur til á síðustu áratugum. Viðfangsefni listamannanna eru fjölbreytt en verkin á þessari sýningu eiga það sameiginlegt að þau einkennast af hrynjanda eða endurtekning...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Hugvit - Einar Þorsteinn Ásgeirsson
07. maí - 14. ágúst 2011  

Hugvit - Einar Þorsteinn Ásgeirsson

Hugmyndir hönnuðarins Einars Þorsteins Ásgeirssonar byggja á þeirri sannfæringu hans að hugvit geti byggt betri heim sé því rétt beitt. Verk hans endurspegla mikla þekkingu og einstaka sýn á lögmál náttúrunnar og hvernig beita megi þessum lögmálum í arkitektúr, hönnun og myndlist. Á sýningunni í Hafnarborg verða sýndar teikningar, líkön, hönnunarmu...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Abstrakt - JBK Ransú og Guðrúnar Bergsdóttur
05. maí - 19. júní 2011  Sverrisal

Abstrakt - JBK Ransú og Guðrúnar Bergsdóttur

Sýning á verkum JBK Ransú og Guðrúnar Bergsdóttur verður opnuð í Sverrissal Hafnarborgar í samstarfi við listahátíðina List án landamæra fimmtudaginn 5. maí kl. 16:00 . 


Listahátíðin List án Landamæra er í ár haldin í áttunda sinn en hátíðin var fyrst haldin á Evrópuári fatlaðra árið 2003 – 2004.  Markmið hátíðarinna...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Varanlegt augnablik - Sigtryggur Baldvinsson og Þorri Hringsson
19. mars - 01. maí 2011  

Varanlegt augnablik - Sigtryggur Baldvinsson og Þorri Hringsson

Myndlistarmennirnir Sigtryggu Bjarni Baldvinsson og Þorri Hringsson nota báðir náttúruna og landslagið sem uppsprettur hugmynda í verkum sínum. Þeir eru þekktir fyrir málverk sem endurspegla persónulega nálgun við áþekk viðfangsefni en fara hvor sína leið í nálgun sinni við málverkið og eiginleika þess.


Texti eftir Margréti Elísabet...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Birgir Andrésson og vinir
19. mars - 01. maí 2011  

Birgir Andrésson og vinir

Birgir Andrésson (1955-2007) hafði áhrif á íslenska listasögu og markaði spor sem seint fyrnast. Á sýningunni eru verk sem hann vann með öðrum listamönnum. Verkin mynda tvennur þar sem hugmyndir eru lagðar saman en útfærðar og túlkaðar á ólík...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands - Libia Castro og Ólafur Ólafsson
12. febrúar - 13. mars 2011  

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands - Libia Castro og Ólafur Ólafsson

Sýning þar sem myndbandsverk Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands  skipar meginsess. Verkið er unnið í samstarfi við tónskáldið Karólínu Eiríksdóttur og byggir á samnefndum tónlistar- og myndlistargjörningi sem fluttur var í Hafnarborg laugardaginn 12. febrúar. Myndbandsverkið, sem er upptaka frá flutning...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Kjarvalar - Stefán Jónsson
08. janúar - 07. mars 2011  

Kjarvalar - Stefán Jónsson

Stefán er íslenskur myndlistamaður fæddur á Akureyri 1964, hann hefur löngum fengist við að búa til höggmyndir sem sækja andgift í listasöguna út frá sinni eigin upplifun og reynslu. Sýningin hans Kjarvalar er til sýnis í Sverrisal og stendur til 21. febrúar.

Kjarvalar

Kjarvalar Stefáns Jónsson...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Brot úr náttúrunni – Eiríkur Smith abstraktverk 1957 – 1963
08. janúar - 06. febrúar 2011  

Brot úr náttúrunni – Eiríkur Smith abstraktverk 1957 – 1963

Sett hefur upp önnur sýning í sýningaröð Hafnarborgar á verkum Eiríks Smith. Listmálarinn Eiríkur Smith (f. 1925) á að baki langan og farsælan feril. Hafnarborg varðveitir fjölda verka eftir Eirík Smith en árið 1990 gaf hann safninu hátt á fjórða hundrað verka eftir sig, olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar. Sýningin <...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Eggert Pétursson
30. október - 02. janúar 2011  

Eggert Pétursson

Sýning á nýjum málverkum eftir Eggert Pétursson þar sem hann sækir innblástur í smágerðan gróður sem vex í hrauni. Það er ætíð beðið með eftirvæntingu eftir sýningum á verkum þessa mikils metna listamanns en hann hefur náð meistaratökum á viðfangsefni sínu eins og sagt var í dómi um síðustu sýningu listamannsins hér á landi árið 2007. Eggert ...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Gjörningaklúbburinn - TIGHT
30. október - 02. janúar 2011  

Gjörningaklúbburinn - TIGHT

Opnuð verður sýning á nýjum verkum Gjörningaklúbbsins sem ber titilinn Tight. Sýningin var fyrst sett upp í Amos Anderson listasafninu í Helsinki. Gjörningaklúbburinn hefur verið áberandi afl innan íslenskrar myndlistar allt frá því hann var stofnaður 1996 en hann skipar Eirúnu Sigurðardóttur, Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur.
...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Að elta fólk og drekka mjólk
27. ágúst - 24. október 2010  

Að elta fólk og drekka mjólk

Sýning á verkum íslenskrar listamanna af ólíkum kynslóðum sem notað hafa húmor á einn eða annan hátt. Í verkunum má greina ýmist hárfína kímni, vitsmunalegt háð, satíru eða rökleysu. “Grunntónn tilverunnar er meinlaust grín” sagði Þorbergur Þórðarson í bók sinni Bréfi til Láru og taldi það til náðargáfu að geta séð alvarlega hluti í broslegu ljósi....
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Formlegt aðhald -Verk Eiríks Smith 1951- 1957
26. júní - 22. ágúst 2010  

Formlegt aðhald -Verk Eiríks Smith 1951- 1957

Listmálarinn Eiríkur Smith (f. 1925) á að baki langan og farsælan feril. Á síðari árum er hann einkum þekktur fyrir málverk þar sem maðurinn er gjarnan í forgrunni en landið og mannanna verk mynda magnþrungna umgjörð. En ferill Eiríks er langur og hefur tekið miklum breytingum bæði í takt við tíðarandann en einnig vegna þess að listamaðurinn hefur ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu - Erling T.V. Klingenberg
20. maí - 20. júní 2010  

Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu - Erling T.V. Klingenberg

Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu er yfirskrift sýningar á verkum Erlings T.V. Klingenberg sem verður opnuð með gjörningi í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, næstkomandi fimmtudagskvöld 20. maí kl. 20. Opnunin verður viðburður sem mun skilja eftir sig sjálfa sýninguna en hún verður að öðru leyt...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Staðir - Friederike von Rauch
16. maí - 20. júní 2010  

Staðir - Friederike von Rauch

Þýski ljósmyndarinn Friederike von Rauch (f.1967) sem hefur vakið athygli fyrir tærar og kyrrlátar ljósmyndir af þekktum og óþekktum stöðum. Í myndum sínum leitast hún við að sýna óvenjuleg sjónarhorn af stöðum sem eru mannlausir og eyðilegir. Hún gerir tilraun til að afmá sögu og táknræna merkingu staðanna svo myndirnar verða draumkenndar og...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Lækjarlitir í Hafnarborg
05. maí - 13. maí 2010  í kaffistofu

Lækjarlitir í Hafnarborg

Samsýning myndlistarfólks frá Læk í veitingasölu Manns lifandi í Hafnarborg á vegum listahátíðarinnar List án landamæra. Lækur í Hafnarfirði er staður fyrir fólk sem átt hefur við geðraskanir að stríða. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og styrkja þannig andlega og líkamlega heilsu. Mikil áhersla er lögð á menningu og listir í sta...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Í barnastærðum - Íslensk og alþjóðleg hönnun fyrir börn
13. mars - 09. maí 2010  

Í barnastærðum - Íslensk og alþjóðleg hönnun fyrir börn

Í barnastærðum er sýning sem veitir innsýn í heillandi heim hönnunar fyrir börn. Sýningargestir á öllum aldri kynnast leikföngum og húsgögnum sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Bæði verður sýnd íslensk og alþjóðleg hönnun en eitt af meginmarkmiðum sýningarinnar er að skoða verk íslenskra ...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Endalokin - Ragnar Kjartansson
16. janúar - 28. febrúar 2010  

Endalokin - Ragnar Kjartansson

Verk Ragnars Kjartanssonar, The End eða Endalokin, sem var framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins 2009 verður sýnt í Hafnarborg í janúar - febrúar 2010. Sýningunni lauk síðastliðin nóvember og vakti mikla athygli. Ragnar er kunnur fyrir fjölbreytt verk sín sem eiga rætur að rekja í ólíka miðla, m.a. leikhús, tónlist, málverk og...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Ljósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
16. janúar - 28. febrúar 2010  í Sverrissal

Ljósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir

Ljósbrot Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur (f. 1976) er innsetning sem hún vinnur í Sverrissal Hafnarborgar. Verkið er gert sérstaklega fyrir þessa sýningu og rými salarins látið móta mörk og innri byggingu þess. Hér mætast þættir sem Ingunn Fjóla hefur áður nýtt í verkum sínum, en það eru bæði litaspil og formrænir fletir módernískra málverka og ...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Hvar er klukkan? - Davíð Örn Halldórsson
07. nóvember - 03. janúar 2010  á neðri hæð

Hvar er klukkan? - Davíð Örn Halldórsson

Davíð Örn Halldórsson (f.1976) hefur vakið athygli fyrir málverk sem einkennast af kraftmikilli notkun lita og spennandi samruna forma og frásagnarkennds fantasíuheims. Hann hefur unnið bæði málverk og rýmisverk sem hafa sterka skýrskotun til graffítíverka en falla á einstæða hátt að myndlistarhefðinni um leið og þau vísa sterkt í götulistina...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Úrvalið - Íslenskar ljósmyndir 1866-2009
07. nóvember - 03. janúar 2010  Aðalsalur

Úrvalið - Íslenskar ljósmyndir 1866-2009

Sýning á verkum eftir þrettán íslenska ljósmyndara, níu látna og fjóra sem enn starfa. Sýningarstjórinn, Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari, valdi verk ellefu karla og tveggja kvenna sem öll gerðu ljósmyndun að ævistarfi. Ljósmyndararnir eru: Sigfús Eymundsson, Nicoline Weywadt, Magnús Ólafsson, Pétur Brynjólfsson, Sigríður Zoëga, Jón Kaldal, Ólafu...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Lífróður - Föðurland vort hálft er hafið
28. ágúst - 01. nóvember 2009  

Lífróður - Föðurland vort hálft er hafið

Á sýningunni verða verk eftir tæplega þrjátíu listamenn sem fengist hafa við hafið í list sinni. Verkin er fjölbreytt og fást við hafið frá ýmsum sjónarhornum, bæði sem náttúrufyrirbæri og lífæð sem gefur líf og tekur líf og kalla þannig á hugleiðingar um félagsleg og pólitísk viðfangsefni sem tengjast hafinu. Hér er á ferðinni áhugaverður hópur li...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Safn(arar)
24. júní - 16. ágúst 2009  

Safn(arar)

Sýningin Safn(arar) er haldin í tilefni þessa að 100 ár eru liðin frá fæðingu Sverris Magnússonar sem lagði grunninn að Hafnarborg með því að færa Hafnarfjarðarkaupstað húsið og listaverkasafn sitt að gjöf. Sýnd verða valin verk úr stofngjöfinni en þau sett í samhengi við samtímann með því að sýna jafnframt verk úr eigu samtímasa...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Madame Lemonique & Madame Lemonborough - Guðný Guðmundsdóttir
16. maí - 21. júní 2009  Sverrissalur & Apótek

Madame Lemonique & Madame Lemonborough - Guðný Guðmundsdóttir

Guðný Guðmundsdóttir (f. 1970) hefur vakið athygli fyrir stórar teikningar sem einkennast af fágætri næmni og nýstárlegri úrvinnslu hefðbundinna miðla. Á sýningunni í Hafnarborg verða skúlptúrar og mjög stórar teikningar þar sem teflt er saman formum og ljóðrænu myndefni sem helst á sér samsvörun í myndlýsingum eða jafnvel myndskreytingum Skólaljóð...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Vættir - Jónína Guðnadóttir
16. maí - 21. júní 2009  Aðalsalur

Vættir - Jónína Guðnadóttir

Verk Jónínu Guðnadóttur eiga rætur í leirlist en hún vinnur skúlptúra og veggverk þar sem eiginleikar leirsins eru rannskaðir í samhengi annarra efna. Á sýningunni glímir hún við landvættina og aðra vætti í eiginlegri og óeiginlegri mynd. Í verkunum leitar hún í eigin uppruna og vinnur m.a. innsetningu sem hefur sterka skírskotun í sögu og he...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Veðurskrift - Guðrún Kristjánsdóttir
04. apríl - 10. maí 2009  

Veðurskrift - Guðrún Kristjánsdóttir

Guðrún er þekkt fyrir áhrifamikil verk sem túlka íslenska náttúru og náttúrusýn á frumlegan hátt. Á sýningunni í Hafnarborg eru málverk, ljósmyndir, myndbandsverk og umfangsmikil innsetning. Í þessum verkum fæst Guðrún við síbreytileg form og kviku náttúru Íslands og áhrif veðurs á land og menn. Sýningarstjóri er Birta Guðjónsdóttir....
>>MEIRA
mynd tengd atburði: VERUND - Helgi Gíslason
21. febrúar - 29. mars 2009  

VERUND - Helgi Gíslason

Verund – hlutlægur veruleiki er yfirskrift sýningar Helga Gíslasonar. Hann er einn af þekktustu myndhöggvurum þjóðarinnar og eru höggmyndir hans víða um land. Á þessari umfangsmiklu sýningu verða teikningar, lágmyndir og skúlptúrar. Þema sýningarinnar er rannsókn á manninum og mælikvörðum hans og endurspeglar sýningin þátt teikningarinnar í sk...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Íslenskir listamenn - Jónatan Grétarsson
10. janúar - 15. febrúar 2009  

Íslenskir listamenn - Jónatan Grétarsson

Jónatan Grétarsson er ungur ljósmyndari sem hefur undanfarið ár unnið að því að ljósmynda íslenska listamenn. Á sýningunni verða um 40 portrett af þekktum listamönnum úr ýmsum greinum og birta þær áhugaverða sýn á skapandi einstaklinga samtímans. Jónatan notar áhrifamikið samspil ljóss og skugga til að mála sterkar myndir af svipmiklu fólki.<...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Þættir - Björg Þorsteinsdóttir
10. janúar - 15. febrúar 2009  

Þættir - Björg Þorsteinsdóttir

Í sölunum á neðri hæð safnsins verða sýnd ný verk eftir myndlistarkonuna Björgu Þorsteinsdóttur. Hér eru á ferðinni málverk og teikningar þar sem listakonan teflir saman efnum og tækni á nýstárlegan hátt. Hún tekst meðal annars á við shiboritækni á austurlenskan pappír og teikningu á svífandi léttum skúlptúrum og lágmyndum.

 

...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Jólasveinar Brians Pilkingtons
28. nóvember - 06. janúar 2009  í kaffistofu Hafnarborgar Maður lifandi

Jólasveinar Brians Pilkingtons

Föstudaginn 28. nóvember var opnuð sýning á nýjum myndskreytingum eftir Brian Pilkington af íslensku jólasveinunum, Grýlu og Leppalúða. Sýningin mun standa fram á þrettándann og er tilvalið að koma með börnin til að skoða þessar vönduðu teikningar og bækur um jólasveinana um leið og jólaþorpið í Hafnarfirði er heimsótt.

&nbs...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: CHARLOTTENBORGARÁRIN 1961-1968. Tækifæri og örlög
15. nóvember - 04. janúar 2009  SALUR ll,lll

CHARLOTTENBORGARÁRIN 1961-1968. Tækifæri og örlög

Þessi sýning setur verk Sveins Björnssonar í samhengi verka eftir lítinn hóp málara, sem lagði stund á nám við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn og sýndi saman á Charlottenborg á tímabilinu 1961 – 1968. Undirtitill sýningarinnar dregur fram að þó að tækifæri gefist til að helga sig listinni verður ekki vikist undan ölögunum sem oft hafa annað í huga....
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Sjórinn og Sjávarplássið -Sveinn Björnsson
15. nóvember - 04. janúar 2009  

Sjórinn og Sjávarplássið -Sveinn Björnsson

 

Á sýningunni Sjórinn og sjávarplássið eru valin málverk Sveins Björnssonar (1925 – 1997) sem sýna vel hve nátengdur hann var sjónum og sjávarútvegi í listsköpun sinni. Sveinn hóf starfsævi sína sem sjómaður en hann hætti til sjós og gerði myndlist að meginviðfangsefni ævi sinnar. Elsta verkið á sýningunni vann hann veturinn 1948 – 49 af...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Tveir Módernistar - Sigurjón Ólafsson og Þorvaldur Skúlason
04. október - 09. nóvember 2008  

Tveir Módernistar - Sigurjón Ólafsson og Þorvaldur Skúlason

Sigurjón Ólafsson(1908-1982) fæddist á Eyrarbakka árið1908.  Fyrstu tilsögn í myndlist hlaut hann hjá Ásgrími Jónssyni listmálara og síðar Einari Jónssyni myndhöggvara.  Samhliða listanáminu lauk Sigurjón sveinsprófi í húsamálun frá Iðnskólanum í Reykjavík vorið 1927 og ári síðar sigldi hann til Kaupmannahafn...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: 8+8 Made in Hafnarfjordur
06. september - 05. október 2008  Hafnarborg og Hönnunarsafn Íslands

8+8 Made in Hafnarfjordur

Í tilefni af hundrað ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar opnar sýningin 8+8 Made in Hafnarfjörður, næstkomandi laugardag 6. september kl. 15 í sýningarsalnum Dverg á vegum Hafnarborgar og Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Til sýnis verður afrakstur samstarfs 8 alþjóðlegra hönnuða og 8 hafnfirskra framleiðslufyrirtækja, en verkefnið sýnir fram á ...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Kraftur og mýkt - Sigrún Ólafsdóttir
30. ágúst - 28. september 2008  

Kraftur og mýkt - Sigrún Ólafsdóttir

Yfirlitssýning á teikningum og skúlptúrum frá 1996 - 2008

Listakonan Sigrún Ólafsdóttir, fæddist í Reykjavík árið 1963 og býr nú í Saarbrücken í Þýskalandi. Sköpunarkraftur hennar beinist einkum að skúlptúrverkum og teikningum. Henni hefur m.a verið falið að gera stór verk fyrir opinberar byggingar, banka og einkafyrirtæki í Þýskalan...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Creighton Michael
26. júlí - 24. ágúst 2008  Bylgjulengdir

Creighton Michael

Verk hins þekkta bandaríska myndlistarmanns, Creighton Michael verða á tveimur mynd-listarsýningum á höfuðborgarsvæðinu næstu vikurnar. Sýningarnar verða opnaðar með nokkurra daga millibili, hin fyrri í Hafnarborg laugardaginn 26. júlí og sú seinni í Start Art þann 31. júlí. Á sýningunni í Hafnarborg verða skúlptúrar og grafíkverk. Creighton Michae...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Keramik frá Nikaragua
26. júlí - 24. ágúst 2008  

Keramik frá Nikaragua

Níkaragva er stærsta land Mið-Evrópu og keramik þaðan á sér djúpstæða menningarlega sögu.  Undanfarna þrjá áratugi hafa bæði tækni og gæði þessara afurða þróast mikið og framboð sömuleiðis. Nú í fyrsta sinn í sögunni er samtímakeramik frá Níkaragva til sýnis í evrópskum söfnum. Sú sýning sem nú er sett upp í sölum I og II í Hafnarborg k...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Hundrað
29. maí - 21. júlí 2008  

Hundrað

Hundrað 

Byggðasafnið í Hafnarfirði setur upp sýninguna Hundrað en á henni eru til sýnis ljósmyndir sem spanna hundrað ára sögu Hafnarfjarðarkauspstaðar ásamt örsögum. Hér að neðan er hægt að sjá fyrstu örsöguna.

Árið 1908 – 1469 íbúar
Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi 1. júní 1908. Sama dag var fyrsti kjörfund...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Hafnfirðingar
01. júní - 21. júlí 2008  

Hafnfirðingar

Árni Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður fæddist 11. mars 1927 í Hafnarfirði.  Hann hefur verið ötull í að mynda Hafnfirðinga en það var fyrir 50 árum sem hann fór að hafa áhuga á að taka myndir af eldra fólki á förnum vegi í Hafnarfirði, aðallega af þeim Hafnfirðingum sem lengi höfðu átt þar heima.  Hvatinn að þessum ljósmyndum voru ljósmyn...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Einar Már Guðvarðarson 1954-2003 - Steinskúlptúr
26. apríl - 25. maí 2008  

Einar Már Guðvarðarson 1954-2003 - Steinskúlptúr

Einar Már Guðvarðarson myndhöggvari fæddist í Hafnarfirði 9.febrúar 1954 en lést árið 2003.  Hann bjó og starfaði lengi í Hafnarfirði í Ljósaklifi.  Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1974 og útskrifaðist frá mynd-og handmenntadeild Kennaraháskóla Íslands árið 1979.  Hann fór í ársnám í Kaupmannahafnarháskólann í ...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Jóna Guðvarðardóttir - Leirskúlptúr
26. apríl - 25. maí 2008  

Jóna Guðvarðardóttir - Leirskúlptúr

Jóna Guðvarðardóttir fæddist árið 1949 í Hafnarfirði.  Hún lauk prófi frá Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1975 og framhaldsnámi við Listiðnaðarskóla Ungverjalands í Búdapest 1987.  Jóna starfaði sem deildarstjóri við Leirlistardeild Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1984-94 og kenndi við skólann til 2000.  Þá hefur hún haldið fyrir...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Hildur Ýr Jónsdóttir - Skúlptúr - Skartgripir
26. apríl - 25. maí 2008  

Hildur Ýr Jónsdóttir - Skúlptúr - Skartgripir

Hildur Ýr fæddist árið 1976 í Hafnarfirði.  Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla 1997 og stundaði nám við hönnunardeild Iðnskólans í Hafnarfirði.  Þaðan lá leiðin í Gerrit Rietveld listaakademíuna í Amsterdam, Hollandi og útskrifaðist hún með BA nám frá nútímaskartgripadeild skólans vorið 2006.  Hildur Ýr hefur tekið þátt í sa...
>>MEIRA
mynd tengd atburði: Hafnfirskir myndlistarmenn
08. mars - 21. apríl 2008  Hátíðarsýning í tilefni 100 ára afmæli Hafnarfjarðar

Hafnfirskir myndlistarmenn

Öld er liðin frá því að Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi. Af því tilefni er efnt til sýningar í Hafnarborg á verkum fimmtíu myndlistarmanna. Þeir fimmtíu myndlistarmenn sem eiga verk á sýningunni í Hafnarborg hafa allir einhver tengsl við Hafnarfjörð. Flestir þeirra eru hér búsettir eða hafa vinnustofur sínar hér, aðrir eiga rætur hér e...
>>MEIRA

mynd tengd atburði: Hafnarborg 1983-2008
12. janúar - 03. mars 2008  Hátíðarsýning á verkum úr safni Hafnarborgar

Hafnarborg 1983-2008

Hafnarfjarðarkaupstaður á aldarafmæli á árinu 2008 og
Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, á 25 ára afmæli.
Af því tilefni verður efnt til hátíðarsýningar á verkum úr safni Hafnarborgar.

Frumkvöðlar að stofnun Hafnarborgar voru þau hjónin lyfjafræðingarnir Sverrir Magnússon og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, ...
>>MEIRA


Heim

Heim
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is