Pleaser er sýning á nýjum og nýlegum verkum eftir Hörpu Björnsdóttur í Sverrissal. Verk Hörpu Björnsdóttur (f. 1955) fjalla á einn eða annan hátt um hlutverk og stöðu listamannsins, þau skilaboð sem hann ber umhverfi sínu og þann menningarlega hugmynda- og táknheim sem listamenn sækja í. Sköpunin, hið sanna í listinni og leiðin að kjarna listrænnar upplifunar eru viðfangsefni sem standa henni nærri og hefur hún unnið margræð verk þar sem klassískur táknheimur og sögulegar vísanir leiða áhorfandann áfram í listrænni upplifun. Hún hefur fundið hugmyndum sínum farveg í margvíslegan efnivið og hefur meðal annars sýnt málverk, skúlptúra, lágmyndir, vatnslitamyndir, grafík, ljósmyndir og myndbandsverk, auk þess sem ljóð eftir hana hafa komið út á bók.
Í verkinu Pleaser frá 2007 notar listakonan sjálfa sig sem efnivið. Hún nálgast hugmyndina um listamanninn sem gleðigjafa af bernskri kímni þar sem hún stillir saman manneskju og fugli sem syngja af hjartans lyst og bera þannig ávöxt í hugum manna. Undir liggur þó hin tvíræða hugmynd um falinn sársauka og um þann sem tístir og það sem saklaus söngur getur hrundið af stað. Persónulegt táknmál listakonunnar nýtur sín einnig í verkinu Villimeyjar og völundarhús (2011) þar sem hún raðar saman ljósmyndum, teikningum og litlum gifsskúlptúrum sem saman mynda eina heild. Nánast bernskar teikningar af völundarhúsum með táknrænum verum í miðju formsins, ljósmynd af sögulegu góbelínveggteppi frá 16. öld, ljósmynd af villimey í íslenskri náttúru og kuðungur hverfast um hugmyndina um það sem nærir listræna upplifun. Tvær villimeyjarnar, önnur klassísk táknmynd á góbelínteppinu sem nærir einhyrning með brjóstamjólk og hin, skjaldmey íslenskrar náttúru, eru táknmyndir sköpunar og grósku. Þær eru skoðaðar í samhengi völundarhúsa sem eru tákn ferðalagsins í gegnum lífið. Ferðalagið í gegnum þessi völundarhús leiðir áhorfandann að goðsagnarkenndum verum sem tengja saman menningarlegar táknmyndir og persónulegt ferðalag. Verkin bera vott um áhuga Hörpu á sambandi listamannsins við eigin hugmyndaheim um leið og hún leitar fanga í menningarlegum táknheimi sem fylgt hefur mannkyninu um langan aldur.
Listferill Hörpu hefur að mörgu leyti verið dæmigerður fyrir feril margra íslenskra myndlistarmanna sem hafa helgað sig listsköpun jafnframt því að stunda fjölbreytt störf sem öll skipta máli fyrir listalífið í landinu. Hún á að baki um þriggja áratuga myndlistarferil og hefur á þeim tíma tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið rúmlega tuttugu einkasýningar. Harpa stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1976 - 1982 jafnframt því sem hún var gestanemandi við Listakademíuna í Dublin á Írlandi. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1984 og hefur haldið einkasýningar m.a. á Kjarvalsstöðum, í Listasafni ASÍ og Hafnarborg árið 1995. Flest söfn landsins eiga verk eftir Hörpu. Jafnframt myndlist hefur Harpa verið mikilvirkur sýningastjóri, kennari og skipuleggjandi fjölbreyttra viðburða er tengjast myndlist, m.a. í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og í Safnasafninu á Svalbarðsströnd, auk þess sem hún hefur verið verkefnisstjóri Menningarnætur í Reykjavík og framkvæmdastjóri Listahátíðar.
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |