
|
Grunnurinn að Hafnarborg, menningar- og miðstöð Hafnarfjarðar var lagður árið 1983, með gjöf þeirra hjóna, Sverris Magnússonar og Ingibjargar Sigurjónsdóttur, en þau gáfu Hafnarfjarðarbæ húseignina að Strandgötu 34 í Hafnar-firði ásamt listaverkasafni sínu og bókasafni. Hafnarborg var formlega opnuð sem menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar í maí 1988.
Hafnarborg varðveitir listaverkasafn Hafnarfjarðar og er rekin af Hafnarfjarðarbæ. Í safninu eru þrír sýningarsalir en sýningar eru á verkum úr safni Hafnarborgar og einnig eru haldnar fjölbreyttar sýningar á íslenskri og erlendri samtímalist. Sýningar sem koma erlendis frá eru unnar í samvinnu við listasöfn, menningarsjóði og stofnanir erlendis. Verk úr safni Hafnarborgar eru m.a. sett upp á skrifstofum og stofnunum Hafnarfjarðarbæjar. Öflugt fræðslustarf er í tengslum við sýningar.
Í Hafnarborg eru starfandi fræðslufulltrúar. Upplýsingar um sýningar eru sendar skólunum vor og haust. Leiðsögn fyrir nemendur þarf að panta með fyrirvara.
Tónleikahald er stór liður í starfsemi Hafnarborgar og aðstaða er til ráðstefnu og fundarhalds. Hafnarborg rekur einnig vinnustofu og íbúð fyrir gestalistamenn.
Í Hafnarborg er glæsileg kaffistofa, Maður lifandi, á 1. hæð. Kaffiveitingar allan daginn en léttir réttir og grænmetisbar í hádeginu.
Hafið samband ef þið viljið fá frekari upplýsingar um stofnunina og þá starfsemi sem þar fer fram. Við tökum líka á móti umsóknum frá listamönnum sem vilja nýta sér gestavinnustofu stofnunarinnar. Sjá um gestavinnustofuna hér
Sendið okkur rafpóst:
|