![]() |
Hafnarborg rekur listamannaíbúð með vinnuaðstöðu á efstu hæð safnsins að Strandgötu 34, Hafnarfirði, sem ætluð er til dvalar fyrir íslenska og erlenda listamenn. Gestavinnustofan er í miðbæ Hafnarfjarðar skammt frá aðalstrætóstöð bæjarins og er mjög auðvelt að komast til Reykjavíkur og á aðra staði. Þeir sem í íbúðinni dvelja, greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn Hafnarborgar, 300 evrur- á mánuði. Gestavinnustofunni er úthlutað til eins mánaðar í senn. Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum sem Hafnarborg setur varðandi afnot af húsnæðinu og vinnuaðstöðunni.
Húsnæðið er samtals um 80 fm og skiptist í eldhús, borðstofu, baðherbergi, vinnustofurými/stofu og eitt stórt svefnherbergi með hjónarúmi. Íbúðin er búin öllum nauðsynlegustu búsáhöldum, sængurfatnaði, handklæðum, þvottavél, þurrkara og sjónvarpi auk sími og Internet. |
| Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Ísland |
Opið alla daga kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21. Lokað á þriðjudögum. www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is 585 5790 |